438 nemendur brautskráðust frá Háskólanum í Reykjavík í gær, 15. júní. Útskriftarnemendur sem ljúka grunnprófi nú eru 273 talsins og ljúka 130 nemendur meistaranámi eða doktorsnámi. Á liðnu skólaári stunduðu um 3200 nemendur nám við HR og hefur háskólinn brautskráð hátt í 800 nemendur á þessu ári.
Lesa meira
Dr. Jón Þór Sturluson, dósent við viðskiptadeild HR, hefur verið ráðinn aðstoðarforstjóri Fjármálaeftirlitsins.
Lesa meira
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, aðjúnkt við tækni- og verkfræðideild HR, hefur verið skipuð forstjóri Skipulagsstofnunar til næstu fimm ára af umhverfis- og auðlindaráðherra.
Lesa meira
Háskólinn í Reykjavík brautskráði 31 nemanda úr MBA-námi og 47 frumgreinanema á laugardag. Báðar athafnirnar fóru fram í húsnæði háskólans við Nauthólsvík.
Lesa meira
Ragnhildur Helgadóttir, prófessor í stjórnskipunarrétti við lagadeild HR, ræddi í fréttum RÚV í gær um túlkun forsætisráðherra á ummælum forseta Íslands við setningu Alþingis.
Lesa meira
Helgi Þór Ingason verkfræðingur og dósent við tækni- og verkfræðideild HR hefur unnið að því undanfarin áratug að finna leið til að vinna nýtanlegt ál úr álgjalli frá Norðuráli.
Lesa meira
Dr. Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, leggur til að allir háskólar á Íslandi verði sjálfstæðar sjálfseignarstofnanir, sem beri ábyrgð á eigin fjármunum. Hver skólastofnun fái rekstrarfé byggt á gæðum námsins og hagræði í rekstri.
Lesa meira
Ráðstefnan Startup Iceland var sett í Háskólanum í Reykjavík í gær. Þar koma saman frumkvöðlar hvaðanæva að úr heiminum til að deila reynslu sinni og styrkja tengslanetið. HR og Startup Iceland gerðu með sér samstarfssamning fyrir stuttu sem miðar að því að styðja við íslenska frumkvöðla.
Lesa meira