Áskorunin 2012

HR áskorunin 2011

HR - Áskorunin

er hönnunarkeppni sem er opin öllum þeim sem hvorki hafa lokið háskólanámi né eru skráðir í háskólanám.

Keppendur þurfa að leysa ákveðna þraut sem reynir á tæknilegt innsæi og úrræðasemi. Keppt er árlega á vorönn og glímt er við nýja þraut hverju sinni. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir þau lið sem standa sig best.

HR-Áskorunin 2012 felst í því að hanna og smíða vél sem flytur geisladisk frá upphafsstað til lokastaðar. Vélin fer í gegnum a.m.k. 20 aðgerðir og þarf geisladiskurinn að hafa viðkomu á a.m.k. tveimur öðrum stöðum en upphafi og endi.

Skráning fer fram rafrænt og skila keppendur af sér myndskeiði og lýsingu á verkefninu á skráningarsíðu ekki seinna en 13. febrúar. Bestu lausnirnar komast í úrslitakeppni sem haldin verður á Háskóladeginum laugardaginn 18. febrúar 2012 í Háskólanum í Reykjavík, Nauthólsvík.

Hægt er að fá ráðgjöf kennara fimmtudaginn 26. janúar og 2. febrúar. Skráning í ráðgjöf fer fram á askorunin@hr.is, þangað má einnig senda fyrirspurnir um keppnina.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica