Áskorun ársins 2010 er að leysa eftirfarandi þraut:
Kasta þarf hráu eggi í gegnum körfuboltakörfu þannig að það lendi óbrotið sem næst punkti beint undir körfunni.
Tækið sem kastar egginu þarf að vera á bak við vítalínu körfuboltateigs. Tækið, eða einhver hluti þess, má þó fara fram fyrir vítalínuna eftir að egginu hefur verið kastað.
Engar skorður eru settar á umbúnað eggsins. Það má vera í umbúðum, með fallhlíf, með rakettumótor o.s.frv.
Karfan og vítateigurinn eru samkvæmt reglum um löglega keppnisvelli, þ.e. karfan er í 305 cm hæð og fjarlægð frá vítapunkti að spjaldi er 4,6 m. Körfuhringurinn er einnig af löglegri stærð og með hefðbundnu neti (sjá teikningu).
Starfsmenn tækni- og verkfræðideildar bjóða ráðgjöf mánudagana 15. febrúar og 8. mars. Þann 8. mars verður hægt að prófa tæki á körfuna sem notuð verður í keppninni.
Fyrir dagslok 14. mars skulu keppendur setja inn myndskeið á youtube sem segir frá þeirra lausn og sýnir virkni hennar. Dómnefnd velur þá keppendur sem boðið verður í úrslitakeppni í HR 20. mars.
Eftirfarandi þættir skipta máli við að meta sigurvegara:
1. Eggið kemst í gegnum körfuna.
2. Eggið lendir óbrotið.
3. Eggið endar sem næst punkti beint undir miðjum hringnum.
Ef fleiri en einn keppandi leysir 1. lið, þá verður 2. liður notaður til að skera úr um sigurvegara. Ef fleiri en einn keppandi leysa 2. lið, þá verður 3. liður notaður til að skera úr um sigurvegara. Ef keppendur eru jafnir að stigum deila þeir sæti og verðlaunum.
Dæmi: Ef keppandi A og keppandi B leysa báðir 1. lið, en ekki 2. lið, þá eru þeir jafnir og deila sæti.
Dómnefnd er valin af tækni- og verkfræðideild HR og sker hún úr um stigagjöf.

