Lýsing á verkefninu

HR áskorun ársins felst í því að búa til vél sem flytur geisladisk frá upphafsstað til lokastaðar með viðkomu á tveimur öðrum stöðum. 

Líkt og í fyrra á vélin á að vera í anda teiknimyndahöfundarins 
Rube Goldberg.  Dæmi um slíka vél má sjá í myndbandi frá hljómsveitinni OK Go og á þessum hlekkjum:

Hlekkur 1: http://www.youtube.com/watch?v=SHLs4-6pLZ4&feature=related.
Hlekkur 2: http://www.youtube.com/watch?v=7OjloH_mxtQ&feature=related.

Eftirfarandi kröfur eru gerðar til vélarinnar:   

  • Vélin skal passa innan ramma sem er 2m á breidd, 2m á dýpt og 2m á hæð.
  • Vélin fer í gegnum a.m.k 20 afmarkaðar aðgerðir við lausn þrautarinnar.        
  • Engin aðgerð má taka lengri tíma en 10 sekúndur.        
  • Viðkoma á hverri áfangastöð skal vera a.m.k. 2 sekúndur.        
  • Vélin leysir þrautina á 1 mínútu (hvorki meira né minna).        
  • Vélin flytur diskinn milli upphafsstöðvar og lokastöðvar með viðkomu á tveimur öðrum stöðvum.        
  • 10 sentimetrar skulu vera á milli áfangastöðva.        
  • Engar tölvustýringar mega vera í vélinni.

Sigur ræðst af fjölda inngripa, fjölda viðkomustöðva, fráviki þess tíma sem
tekur að leysa þrautina frá 1 mínútu (best er að vera sem næst 60 sek.) og
fjölda aðgerða eða skrefa í gangverki vélarinnar.

Forgangsröðun við mat á sigurvegurum er eftirfarandi:

  1. Lágmarkskröfur eru að vélin passi innan rammans og fari í gegnum a.m.k. 20 aðgerðir.
  2. Þraut sé lokið.
  3. Fjöldi inngripa eiga að vera sem fæst.
  4. Viðkoma geisladisks þarf að vera á tveimur fyrirfram ákveðnum stöðvum í a.m.k. 2 sekúndur fyrir utan upphafs- og endapunkt.
  5. Fjöldi skrefa sem taka lengur en 10 sekúndur eru til frádráttar.
  6. Tími sem tekur að leysa þrautina, þ.e. frávik frá 60 sekúndum eru til frádráttar.

Ef tvær eða fleiri vélar standast reglu 1 þá er regla 2 notuð til að skera úr á milli þeirra. Ef tvær eða fleiri vélar eru jafnar samkvæmt reglu 2 þá er regla 3 notuð til að skera úr á milli, og svo framvegis.

Dæmi 1:  Vél A leysir þrautina án inngrips á 67 sekúndum, vél B
leysir þrautina án inngrips á 84 sekúndum og vél C leysir þrautina með einu
inngripi á 61 sekúndu. Í þessu tilfelli kæmi vél A í fyrsta sæti, vél B í
annað sæti og vél C í þriðja sæti. Þetta er vegna þess að regla 3 vegur þyngra
en regla 6 til frádráttar.

Dæmi 2:  Vél A leysir þrautina með einu inngripi á 70 sekúndum, vél B
leysir þrautina á 62 sekúndum með einu inngripi en er með eitt skref sem tekur
lengri tíma en 10 sekúndur. Í þessu tilfelli sigrar vél A. Þetta er vegna
þess að regla 5 vegur þyngra en regla 6 til frádráttar.






 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica