HR - Áskorunin 2011
HR áskorun ársins felst í því að búa til vél sem hellir appelsíni úr lítilli flösku (25cl.) í glas.
Vélin á að vera í anda teiknimyndahöfundarins Rube Goldberg. Dæmi um slíka vél má sjá á myndbandi frá hljómsveitinni OK Go.
Eftirfarandi kröfur eru gerðar til vélarinnar:
- Vélin skal passa innan ramma sem er 2m á breidd, 1m á dýpt og 2m á hæð.
- Vélin fer í gegnum a.m.k 20 afmarkaðar aðgerðir við lausn þrautarinnar.
- Vélin hellir öllu gosinu í glasið.
- Vélin leysir þrautina á 2 mínútum (hvorki meira né minna).
- Engar tölvustýringar mega vera í vélinni.
Sigur ræðst af fjölda inngripa, magn goss í glasinu, fráviki þess tíma sem tekur að leysa þrautina frá 2 mínútum (best er að vera sem næst 120 sek.) og fjölda aðgerða eða skrefa í gangverki vélarinnar.
- Lágmarkskröfur eru að vélin passi innan rammans og fari í gegnum a.m.k. 20 aðgerðir.
- Til að sigra þarf vélin að leysa þrautina án inngrips.
- Allur vökvinn á að enda í glasinu.
Ef tvær eða fleiri vélar leysa þrautina án inngrips þá sigrar sú vél sem að leysir þrautina á tíma sem er nær 2 mínútum.
Ef tvær eða fleiri vélar leysa þrautina án inngrips og með sama tímafráviki, þá vinnur sú vél sem framkvæmir fleiri aðgerðir.
Dæmi 1: Vél A leysir þrautina án inngrips á 127 sekúndum, vél B leysir þrautina án inngrips á 84 sekúndum, og vél C leysir þrautina með einu inngripi á 121 sekúndu. Í þessu tilfelli kæmi vél A í fyrsta sæti, vél B í annað sæti og vél C í þriðja sæti.
Dæmi 2: Vél A leysir þrautina með einu inngripi á 130 sekúndum, Vél B leysir þrautina á 122 sekúndum með einu inngripi en ekki allur vökvinn hellist yfir í glasið. Í þessu tilfelli sigrar vél A.

