Hvernig efni er sett á YouTube

Skil á myndböndum fara fram gegnum YouTube.

Fyrir dagslok 14. mars skulu keppendur setja inn myndskeið á youtube sem segir frá þeirra lausn og sýnir virkni hennar.  Dómnefnd velur þá keppendur sem boðið verður í úrslitakeppni í HR 20. mars

Þegar myndbandið er skráð á YouTube þarf að skrá efnisorðið (tag) „HR-áskorunin“ í viðkomandi reit og stilla birtingu myndbandsins sem „Public“ (þ.e. án aðgangstakmarkana). Slóð á myndbandið inni á YouTube þarf að fylgja skráningu.

Til þess að geta sent myndbönd inn á YouTube þarf að skrá notanda þar. Við nýskráningu er auðveldast að vísa í Google/Gmail aðgang (sem er ókeypis og margir hafa).

Til eru fjölmargar síður með upplýsingum um hvernig myndbönd eru send inn á YouTube, hér er t.d. stutt myndband sem sýnir hvernig ferlið fer fram:


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica