Nemendur frá Menntaskólanum í Hamrahlíð og Menntaskólanum í Reykjavík báru sigur úr býtum í HR-áskoruninni sem haldin var í Háskólanum í Reykjavík í dag í tengslum við Háskóladaginn.
Þrjú lið kepptu til úrslita og hlutskarpastir urðu þeir Ásgeir Valfells úr Menntaskólanum í Hamrahlíð og Hjörvar Logi Ingvarsson úr Menntaskólanum í Reykjavík. Þeir hlutu vegleg peningaverðlaun og fá felld niður skólagjöld á fyrstu önn sinni í Háskólanum í Reykjavík, kjósi þeir að stunda nám við skólann.
Áskorunin í ár fólst í því að hanna og smíða gosþjón sem notar a.m.k. 20 aðgerðir (með svokölluðum dómínóáhrifum) til þess að hella gosi úr flösku á tilsettum tíma. Keppnin reynir verulega á tæknilegt innsæi, hugmyndaflug og úrræðasemi.
Gosvélin átti að vera í anda teiknimyndahöfundarins Rube Goldberg, en dæmi um slíka vél má sjá á myndbandi frá hljómsveitinni OK Go.
HR-áskorunin er hönnunarkeppni, opin öllum þeim sem hvorki hafa lokið háskólanámi né stunda háskólanám. Keppt er árlega á vorönn og er glímt við nýja þraut hverju sinni.


