Bækur og gagnasöfn

Prentað efni

Evrópuupplýsingum - EUi á alla dóma Evrópudómstólsins fráupphafi á prenti á ensku. Skv. reglum um EUi eru þeir ekki lánaðir út. 

Rafrænt efni ESB 1952 –

Meginþorri allra rita Evrópusambandsins hefur nú verið skannaður og settur á netið. Alls eru þetta um 110.000 útgáfur. Eldri árgangar af Stjórnartíðundum ESB (Official Journal) og ýmsar aðrar réttarheimildir hafa þó ekki verið skannaðir og settir á netið. Sama gildir um þau rit sem aðrir en Evrópusambandið eiga höfundarrétt að, þótt ESB hafi gefið þau út.

Önnur góð leið að finna útgáfuefni Evrópusambandsins er leitarvélin Search Europa - http://searcheuropa.eu/ 

ECLAS - bókaskrá ESB

Í bókaskrá bókasafns framkvæmdastjórnarinnar - ECLAS, eru skráðar allar útgáfur ESB auk fjölda vefsíðna. Skráin geymir færslur um 350.000 bækur og skýrslur auk fjölda vefsíðna um málefni Evrópu. Á hverju ári bætast um 7.000 nýjar færslur við í grunninn. Nauðsynlegur vefur fyrir þá sem eru að leita að heimildum um Evrópumál.

ECLAS gagnasafnið veitir einungis bókfræðilegar upplýsingar, en í það er ekki hægt að sækja fullan texta (nema tengt sé í texta á opnum vefjum) né fá greinaþjónustu. 

Ókeypis efni til dreifingar

EUi fær að auki ýmsa upplýsingabæklinga senda í nokkru upplagi sem ætlaðir eru til dreifingar. 

Upplýsingavefur ESB

Evrópusambandið og stofnanir þess halda úti umfangsmiklum upplýsingavef. Á honum eru allar upplýsingar ókeypis. Veffang Evrópuvefsins EUROPA er http://europa.eu/


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica