Opin námskeið og kynningar


Dagskrá opinna námskeiða og kynninga á vormisseri 2012:

Tími:
Mánudagur
Þriðjudagur
Miðvikudagur
 12:00-12:20 Zotero kynning


 12:30-13:00     Örnámskeið
lagadeildar

Öll námskeiðin eru í kennslustofu bókasafnsins, Ú102. Þau eru nemendum að kostnaðarlausu og ekki þarf að skrá sig á þau. Velkomið að taka með nesti og kaffi ...

Efni örnámskeiða lagadeildar er fjölbreytt og verður auglýst í hverri viku. (Karnov, WestLaw, Alþingistíðindi á prenti, rafrænu íslensku lagatímaritin o.fl.)

Einstök námskeið verða auglýst síðar.

Ef það eru einhverjar spurningar varðandi námskeiðin þá beinið þeim á umsjónaraðila.

Fylgstu með okkur á facebook til að fá nýjustu tilkynningarnar.

Um námskeiðin

Zotero kynning

Í þessari 20 mínútna kynningu er sýnt hvernig Zotero virkar. Hvernig heimildir eru vistaðar inn í Zotero og hvernig vísað er svo í þær í Word. Loks er sýnt hvernig Zotero býr til heimildaskrá.

Umsjón: Ragna Björk Kristjánsdóttir, upplýsingafræðingur


Leitir.is kynning

Leitir.is er nýr leitarvefur sem veitir aðgang að safnkosti bókasafna, m.a. safni HR. Einnig er hægt að leita að miklu íslensku efni, t.d. bækur, tímarit, greinar, myndir og tónlist. Kerfið veitir upplýsingar um safnkost og aðgang að rafrænu efni. Jafnframt eru rafrænar tímaritsgreinar og gagnagrunnar í hvar.is leitarbær í gegnum leitir.is.

Nemendur geta fylgst með útlánum sínum í gegnum leitir.is með innskráningu, endurnýjað lánin sín og tekið frá bækur.

Á kynningunni eru helstu möguleikar leitir.is sýndir. 

Umsjón: Ragna Björk Kristjánsdóttir, upplýsingafræðingur



Örnámskeið lagadeildar

Efni örnámskeiða lagadeildar eru fjölbreytt og verða auglýst í hverri viku.

Meðal námskeiða verða: Karnov, WestLaw, Alþingistíðindi á prenti, rafrænu íslensku lagatímaritin o.fl.

Umsjón: Þóra Gylfadóttir, upplýsingafræðingur

 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica