Hjálparforrit við heimildavinnu
Þegar unnið er að heimildaritgerð er mikilvægt að fara rétt með heimildir og tilvísanir. BUHR býður upp á kennslu og aðstoð í notkun hjálparforritanna Zotero. og EndNote Web.
Bæði forritin virka þannig að þegar unnið er í heimildaöflun er hægt að vista upplýsingar um heimildir inn í hjálparforritin. Litlir forritsbútar sem setja þarf upp á tölvu mynda eins konar brú yfir í ritvinnsluforritið og þá er hægt að setja bæði tilvísun í texta og fulla færslu í heimildaskrá inn með því að velja það úr hjálparforritinu. Þetta sparar vinnu og er mjög handhægt í notkun.
Word býður upp á að búinn sé til gagnagrunnur yfir heimildir og auðveldar þar með þegar á að vitna í heimild, en ekki er hægt að "veiða inn" upplýsingar úr öðrum gagnagrunnum, þannig að það er ekki eins vinnusparandi og hjálparforritin.
Að sjálfsögðu er hægt að gera þetta handvirkt, en það krefst mikillar nákvæmni og er mjög tímafrekt þegar um stærri ritgerðir er að ræða (5 heimildir eða fleiri).
Ef þú ert í vafa hvað hentar þér er tilvalið að kíkja á samanburðartöflu fyrir hjálparforritin (pdf)

