Zotero
Zotero er viðbót fyrir Firefox-vafrann og virkar sem hluti af honum. Zotero er þróað í opnum aðgangi og er ókeypis. Auk viðbótarinnar við vafrann þarf að setja upp forritsbút fyrir ritvinnsluforrit (t.d.Word) til að auðvelda tilvitnanir í texta og gerð heimildaskrár.
Innbyggðir í Zotero eru um 15 heimildaskráningarstaðlar, þar á meðal APA-staðallinn sem er mikið notaður í HR. Að auki er hægt að bæta við yfir 1000 stöðlum, m.a. OSCOLA og einnig má skilgreina eigin staðal í Zotero.
Zotero hjálparforritið er auðvelt í notkun. Þeim tíma sem varið er til að setja sig inn í forritið í upphafi er vel varið, ef litið er til þess tímasparnaðar sem næst með notkun forritsins. Allar frekari upplýsingar veita starfsmenn í upplýsingaþjónustuborði á bókasafni s. 599 6234
Til glöggvunar má einnig skoða myndefni sem er á YouTube með leiðbeiningum um Zotero.
Leiðbeiningar (pdf)
- Zotero sett upp á Windows
- Zotero sett upp á Apple
- Heimildir fluttar inn í Zotero
- Vista vefsíður og PDF skjöl inn í Zotero
- Vitnað í heimildir, Word fyrir Windows
- Vitnað í heimildir, Word fyrir Apple
- Heimildaskrá í Zotero
- Vitnað í staðla í Zotero samkvæmt APA-kerfinu
- Grúppur í Zotero - fyrir hópavinnu
- Leiðbeiningar um hvernig setja skal APA-staðallinn á íslensku inn í Zotero. LESA FYRST!
(Gildir líka fyrir IEEE og OSCOLA)
- - - APA á íslensku - hægrismelltu og veldu "save link as" ... skv. leiðbeiningunum
- - - IEEE með blaðsíðutali í tilvísunum - hægrismelltu og veldu "save link as" ... skv. leiðbeiningum fyrir APA
- - - OSCOLA á íslensku - hægrismelltu og veldu "save link as" ... skv. leiðbeiningunum fyrir APA
- Allar Zotero leiðbeiningar fyrir Windows: Zotero fyrir Windows leiðbeiningar
- Allar Zotero leiðbeiningar fyrir Apple: Zotero fyrir Apple leiðbeiningar

