Hvar eru heimildirnar?
Til að finna efni í safni Háskólans í Reykjavík (BUHR) ferðu í skrár hér til hægri.
- Leitir.is - bókasafnskerfi BUHR. Þar finnur þú upplýsingar um bækur, tímarit o. fl. hjá BUHR og öðrum íslenskum söfnum auk tímaritsgreina í landsaðgangi. Á Letir.is er hægt að skrá sig inn þannig að þú getur haft yfirlit yfir eigin útlán, framlengt láni og tekið frá gögn. Leitartrix á Leitir.is
- Tímarit í áskrift A - Ö. Ef þú ert að leita að tilteknu tímariti eða tímaritsgrein ferðu í tímaritalistann A - Ö. Listinn inniheldur öll tímarit sem safnið kaupir, prentuð og rafræn, íslensk og erlend
-
Gagnasöfn. Ef þú ert að leita að efni ferðu í Gagnasöfn. Aðgangur er mismunandi og fer eftir samningum safnsins við útgefendur. Aðgangur getur verið bundinn við aðgangsorð, við allar tölvur Háskólans í Reykjavík eða allar tölvur á Íslandi. Gagnasöfnum í áskrift fylgir tákn sem segir til um hvernig aðgangi er háttað:
- [+] aðgengilegt frá neti HR (IP-tölur) og í fjaraðgangi
- [*] aðgangsorð. Hér sækir þú lykilorð að gagnasöfnunum (og skráir þig inn með HR-lykilorðunum þínum til þess að opna skjalið)
- [#] landsáskrift, allar tölvur á Íslandi
- [~] einungis aðgengilegt frá neti HR (IP-tölur)
Leiðbeiningar um hvernig þú finnur bækur og efni í bókasafninu eru í "menu" hér til vinstri að ofan.

