Til að finna ...


BÓK Í GEGNI

  1. skrifaðu leitarorðið í gluggann
  2. Veldu leitarsvið með því að haka við í lista undir leitarglugganum, t.d. Höfundur A-Öeða Titill A-ö eftir því sem við á og smettu á Leita
  3. Hægt er m.a. að taka frá bækur og fylgjast með eigin útlánum með því að skrá sig inn í Gegni
  4. Til að skrá sig í Gegni þarf að skrifa númer (kennitala) og lykilorð (það færðu á afgreiðslu bókasafnsins, í síma 599 6234 eða með tölvupósti bokasafn@ru.is). Fylgdu leiðbeiningum í Hjálpinni á gegni

 Upphafsleitarmynd Gegnis

HJÁLP í Gegni

Upp   Upp / Up


HÖFUND OG TITIL Í EINNI LEIT
Til að finna höfund og titil í einni leit þarftu að fara í Ítarlega leit  í Gegni.

  1. Veldu leitarsviðið höfundur og skrifaðu nafn höfundar í leitargluggann
  2. Veldu nú leitarsviðið titill og skrifaðu titil bókarinnar í leitargluggann
  3. Til þess að skoða niðurstöður þarf að smella á tölustafinn við Sameiginlegar niðurstöður

 

Um Gegni

Upp   Upp / Up


BÓK Í SAFNI HR
Tvær aðferðir eru til þess að leita í bókakosti BUHR - A og B.

A.  Notaðu Ítarlega leit (sjá flipa efst á síðu) til að vita hvort bók sé til í safni BUHR.

  1. Skrifaðu leitarorðið. Þá þarf að velja:
  2. Háskólar úr felliglugganum Safnhópi neðst vinstra megin og velja siðan 
  3. Háskólinn í Reykjavík úr felliglugganum Safn hægra megin

Um Gegni

 Athugaðu að til þess að skoða leitarniðurstöðu þarf að smella á töluna við Sameiginlegar niðurstöður (sjá nr. 4)

B. Hægt er að velja að leita í safnkosti BUHR á upphafssíðu Gegnis

Um Gegni

Upp   Upp / Up


BÓK Í HILLU
Bækur á safninu eru flokkaðar og þeim raðað í hillur eftir Dewey flokkunarkerfinu (Dewey Decimal Classification System). Samkvæmt Dewey kerfinu eru bækur flokkaðar eftir því efni sem fjallað er um og þeim gefin flokkstala í samræmi við það. Flokkstala samanstendur af tölustöfum - sjá upplýsingar um Dewey-flokkunarkerfið.

Hver aðalflokkanna skiptist í 10 undirflokka sem greinast enn frekar niður. Löng flokkstala merkir yfirleitt að efni rits sé mjög sérhæft. Dæmi:
     658        Stjórnun
     658.8     Markaðsfræði
     658.83   Rannsóknir í markaðsfræði

Flokkstala, bókstafir og ártal mynda raðtákn. Raðtáknið ákvarðar staðsetningu rita í safninu. Upplýsingar um raðtákn eru í Gegni.

Um Gegni

Niðurstöður leitar í bókasafnskerfinu Gegni sýna:

  1. Hvort bók er inni
  2. Raðtákn rits sem segir til um hvar ritið sé að finna í safninu
  3. Ef bók er í útláni færðu upplýsingar um skiladag hennar

 Bækur um svipað efni standa saman í safninu. Raðstafir eru fyrstu 3 stafirnir í nafni höfundar, fornafni Íslendinga en eftirnafni erlendra höfunda. Athugið að ef höfundar er ekki getið raðast rit á fyrstu þrjá bókstafi í titli.

Upp   Upp / Up


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica