Til að finna ...



HVORT TÍMARIT ER TIL
Upplýsingar um öll tímarit sem BUHR kaupir eru á heimasíðu BUHR undir tenglinum Tímarit og tímaritsgreinar.

  1. Skrifaðu heiti tímarits, hluta eða upphaf í leitargluggann og smelltu á Go. Sjálfgefinn valmöguleiki leitar er Contains, en einnig má haka við Starts with eða Exact ef það hentar betur
  2. Í leitarniðurstöðu kemur fram hvort BUHR kaupir tímaritið eða ekki
  3. Ef tímarit er í áskrift birtist tengill í það gagnasafn sem geymir tímaritið
  4. Sama tímarit getur verið geymt í fleiri en einu gagnasafni og er þess þá getið í leitarniðurstöðu. Einnig kemur fram hvaða árgöngum safnið hefur aðgang að.

 Finna tímarit

 

Athugaðu! Ef tímaritið er aðeins keypt á prenti opnast tengillinn inn í bókasafnskerfið Gegni þar sem er að finna frekari upplýsingar.

Tímarit - valgluggi

Ef tímaritið finnst ekki með þessum hætti kaupir BUHR það ekki í áskrift. Þá þarf að finna það annars staðar:

  • Leitaðu í bókasafnskerfinu Gegni. Þar kemur fram ef eitthvert annað íslenskt bókasafn kaupir áskrift að tímaritinu
  • Ef tímaritið er ekki til á landinu er eini möguleikinn að fá greinina frá bókasafni erlendis frá. BUHR annast slíka þjónustu - millisafnalán.
  • eða ...
Tímarit - valgluggi


Upp   Upp / Up


FRÆÐIGREIN

Velja gagnasafn

  • Flest gagnasöfn sem BUHR kaupir í áskrift skrá upplýsingar um greinar úr tímaritum á tilteknum efnissviðum, upplýsingar um höfund, titil, efni og fleira sem viðkemur einstökum greinum. Atriði sem þannig eru skráð eru jafnan leitarbær
  • Gott er að velja gagnasöfn eftir efni á gagnasafnasíðu BUHR til að kynna sér hvað er í boði á tilteknu efnissviði. Þegar búið er að velja efnisflokk kemur upp listi yfir gagnasöfn á viðkomandi efnissviði ásamt umsögn um hvert og eitt. Einnig er þarna að finna tengla í leiðbeiningar um notkun
  • Að auki er hægt að velja gagnasöfn á heimasíðu BUHR úr felliglugga gagnasafna í áskrift og með því að nota stafrófsflokkaða / efnisflokkaða skrá


Leita að greinum um ákveðið efni

  • Vandaðu val á leitarorðum. Leitaðu að orði sem lýsir efninu vel í efnisorðaskrá gagnasafnsins, ef boðið er uppá slíkt (e. thesaurus, topic, indexing terms). Stundum getur verið nauðsynlegt að nota orðabækur við val á leitarorðum
  • Leitaðu að efni eftir virta höfunda á viðkomandi fræðasviði
  • Mundu að skilgreina leitarsvið sem leitin takmarkast við ( author, title, company, person, subject (efni)... )
  • Tengdu saman leitarorð með AND / OR / NOT
  • Sendu okkur póst ef þú hefur einhverjar spurningar: bokasafn@ru.is 


Sækja greinar - heildartextann

  • Oft er hægt að velja tengil í texta greinar, lesa hana af skjánum eða prenta út
  • Tengillinn find_it_54x20 er tákn BUHR um að finna - heildartexta í gagnasafni, á netinu eða leið að millisafnaláni eða greinaþjónustu. Í landsaðgangsgagnasöfnum táknar Finna heildartexta / Find fulltext það sama
  • Ef tímarit er í áskrift kemur fram í leitarniðurstöðu tengill í það gagnasafn sem geymir tímaritið
  • Ef tímarit er í áskrift kemur fram í leitarniðurstöðu hvaða árganga safnið á
  • Ef tímaritið er aðeins keypt á prenti opnast tengillinn inní bókasafnskerfið Gegni þar sem er að finna frekari upplýsingar
  • Hægt er að leita að erlendum tímaritsgreinum með FinnaGrein
  • Upplýsingar um öll tímarit sem BUHR kaupir eru á í Tímarit og tímaritsgreinar

Upp   Upp / Up


ÍSLENSKA TÍMARITSGREIN
Veldu leitarsvið og skrifaðu leitarorð. Hægt er að takmarka leit við ár. Veldu Tímarit - greinar sem tegund efnis og smelltu á Leita. ALDREI  takmarka leit á tímaritsgrein /-um við tiltekið bókasafn - þá skilar leitin engum niðurstöðum!

Finna íslenska tímaritsgrein

Dæmi:
Finna íslenska tímaritsgrein

Upp   Upp / Up

ERLENDA TÍMARITSGREIN

1.  Færa inn titil greinar (skrifa eða klippa og líma)
2
.  Færa inn heiti tímarits (skrifa eða klippa og líma)
3.  A.m.k.
     a. ISSN númer tímaritsins ef það er þekkt
     b. Útgáfuár

Þetta þrennt er LÁMARK. Færið aðrar upplýsingar sem þið hafið um greinina inn í viðkomandi reiti. Veljið möguleikana Byrjar á, Inniheldur eða Nákvæmlega eftir því sem við á.
Finna erlenda tímaritsgrein

Upp   Upp / Up


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica