Erlendar greinar á vef námskeiða
Þegar um erlendar greinar er að ræða á að vísa beint í greinarnar í heimildasöfnunum sjálfum. Á vef námskeiðs í MySchool skal setja TENGIL Í GREININA þar sem hún er geymd hjá útgefanda eða umboðsaðila og þangað sækir notandi hana sjálfur.
Það er EKKI LEYFILEGT að setja greinina sjálfa (PDF eða annað form) á vef námskeiðs og þannig veita aðgang að henni. Þessar reglur gilda um heimildasöfn í áskrift BUHR. Sjálfsagt er að umgangast vísindagreinar í opnum aðgangi á sama hátt.
Til þess að finna hvaða heimildasafn geymir tímaritið sem greinin er í er gott að byrja á því að fletta upp í tímaritalista BUHR og velja síðan Leið 1 eða Leið 2.
Leið 1: Notið DOI (Document Object Identifier)
Mörgum tímaritsgreinum er úthlutað svokölluðu DOI númeri þegar þær eru gefnar út rafrænt. DOI númer auðkenna einstakar greinar líkt og ISBN númer auðkenna bækur, og þessi númer breytist aldrei. DOI númer er því einskonar kennitala rafræns efnis.
- Tímarits grein hefur DOI númerið 10.1016/j.actaastro.2003.12.018 Tölurnar á undan / segja til um útgefandann (í þessu tilfelli Elsevier), seinni talnarunan vísar til tiltekinnar greinar í tilteknu tímariti. Þessi númer er að finna í tímaritasöfnum útgefenda, t.d. ScienceDirect (Elsevier), SpringerLINK (Springer) og WileyInterscience (Blackwell)
- Búið til varanlegan tengil með því að bæta DOI númerinu aftan við slóðina: http://dx.doi.org/ (fylgið leiðbeiningunum)
Varanlegur tengill rafrænu greinarinnar: http://dx.doi.org/10.1016/j.asr.2005.01.097
Leið 2: Notið varnalega tengla í heimildasöfnunum þegar þeir eru í boði
Mörg tímaritasöfn úthluta greinum sínum varanleg vefföng (stable URL, permanent URL o.s.frv.). Rétt er að nota þau á námskeiðsvefinn því þau breytast ekki.
- JSTOR (Stable URL):
http://links.jstor.org/sici?sici=0021-8251%28198003%2911%3A2%3C83%3APODSIT%3E2.0.CO%3B2-U
- ProQuest (Document URL):
http://proquest.umi.com/pqdweb?did=958966401&sid=1&Fmt=4&clientId=58121&RQT=309&VName=PQD - EBSCOHost (Permalink):
http://search.ebscohost.com/login.aspx?direct=true&db=aph&AN=23660096&site=ehost-live

