Um bókasafnið
Háskólabókasafn gegnir lykilhlutverki í hverju háskólasamfélagi.
Hlutverk Bókasafns og upplýsingaþjónustu HR (BUHR) er að styðja og efla sköpun og miðlun þekkingar við Háskólann í Reykjavík með því að safna efni á fræðasviðum skólans, gera það aðgengilegt og veita notendum safnsins góða þjónustu.
Fræðsla er mikilvægur þáttur í þjónustu safnsins og miðar að því að efla með notendum færni í upplýsingalæsi, þ.e. að finna, nota og meta upplýsingar með faglegum og ábyrgum hætti. Áhersla er lögð á aðgang að gögnum á rafrænu formi og er stefnt að því að stúdentar og starfsmenn HR hafi aðgang að rafrænu efni á sínum fræðasviðum sambærilegan við það sem best gerist í alþjóðlegu háskólasamfélagi.
Samstarf um rafræna miðlun safnkosts er BUHR mikilvægt. BUHR er áskrifandi að bókasafnskerfinu Leitir á leitir.is. Leitir er samskrárkerfi íslenskra bókasafna og upplýsingamiðstöðva. Landskerfi bókasafna sér um rekstur kerfisins, en starfsmenn BUHR reyna að leggja sitt af mörkum til áframhaldandi þróunar kerfisins og innleiðingar nýjunga sé leitað til þeirra um slíkt. Annað mikilvægt samstarfsverkefni er Landsaðgangur að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum Hvar.is. Landsbókasafn Íslands hefur umsjón með verkefninu samkvæmt þjónustusamningi við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Forstöðumaður BUHR situr í Stjórnarnefnd landsaðgangs sem er Landsbókasafni til ráðgjafar. Loks má hér nefna þátttöku BUHR í Skemmunni, rafrænu varðveislusafni lokaritgerða íslenskra háskólastúdenta, frá 2010.

