Reglur bókasafnsins
- Þjónusta BUHR er einkum ætluð nemendum, kennurum og öðru starfsfólki HR
- Gestir eru beðnir að sýna öðrum safngestum tillitssemi og virðingu og leggja sitt af mörkum til að hægt sé að vinna í ró og næði á bókasafninu
- Sérstök athygli er vakin á því að bannað er að tala í farsíma á bókasafninu
- Meðferð matar og drykkja er ekki heimil á bókasafninu
- Gestum er heimilt að nota tölvur í lesrými svo lengi sem hljóð frá þeim valda öðrum gestum ekki ónæði
- Sérstök athygli er vakin á því að ekki er heimilt að taka frá lesborð á bókasafni
- Standi lesborð ónotað í klukkustund eða lengur er starfsfólki heimilt að rýma borðið
- Allar bækur og önnur gögn sem farið er með út af bókasafninu þarf að fá lánuð í afgreiðslunni
- Gestir eru hvattir til að ganga vel um bókasafnið og kynna sér og virða almennar umgengnisreglur Háskólans í Reykjavík

