Bókasafnið frá A til Ö

Aðstaða 
Alumni 
Bókasafn
Bókasafnskerfi
Bókasafnskort
BUHR
Drykkir
Endurnýjun lána

Facebook
Farsímar
Fartölvur
Fjaraðgangur
Flokkun bóka
Frátektir

Fyrirspurnir
Gagnasöfn
Gegnir

Gestaaðgangur
Greinapantanir
Greinar
Heimildaleitir
Heimildaskráning
Heimilisfang
Höfundaréttur
Internet

Leitir.is 
Lesaðstaða 
Ljósritun  
Lokaritgerðir

Lykilorð
Kennslubækur
Matur
Mínar síður
Millisafnalán
Námsbækur
Námsefni
Orðabækur
Prentun
Rafrænt bókasafn
Ritgerðir
Safnkostur
Saga BUHR
Skemman
Skönnun
Starfsfólk
Tímarit
Tækjastikur
Twitter
Upplýsingalæsi
Upplýsingaþjónusta
Útlan
Vanskil
Vefspjall
Verðskrá
Þjónusta 

A
Aðstaða - Á bókasafninu býðst nemendum ýmis aðstaða, svo sem vinnuborð bæði fyrir hópa og einstaklinga, sum með tölvum. Ein tölva er eingöngu til leita í leitir.is. Á tölvum safnsins hafa ýmis forrit verið sett upp sem nýtast nemendum, svo sem Acrobat Writer, SPSS og fleira. Prent- og ljósritunaraðstaða er í prentstofu fyrir utan inngang inn á safnið, þar er hægt að prenta og ljósrita í lit og svart/hvítu, og skanna. Prentstofan er opin allan sólarhringinn. Prentkvóti og ljósritunarkort eru seld í afgreiðslu skólans í Sólinni. Bókasafnið selur engin ritföng. Ritföng og innbindimöppur eru seldar í Bóksölu stúdenta.

Alumni - Útskrifuðum nemendum stendur til boða að kaupa bókasafnskort. Kortin kosta 2.500 krónur og gilda í eitt ár.

B
Bókasafn og upplýsingaþjónusta Háskólans í Reykjavík (BUHR)
- Bókasafnið er á fyrstu hæð í Úranus. BUHR býður viðskiptavinum sínum alla almenna bókasafns- og upplýsingaþjónustu, s.s. útlán, upplýsingaleitir og millisafnalán, auk sértækari þjónustu. Má þar nefna upplýsingaþjónustu, aðstoð við heimildaleit og  -skráningu, kennslu í upplýsingalæsinámsbókasafn og fleira. Þjónusta BUHR er einkum ætlum nemendum, kennurum og starfsmönnum HR. Öllum er þó velkomið að heimsækja safnið á auglýstum afgreiðslutíma og nýta sér aðstöðuna og safnkostinn. Sjá einnig "saga BUHR".

Bókasafnskerfi - Sjá Gegnir.

Bókasafnskort - Stúdentar og starfsfólk Háskólans í Reykjavík þurfa ekki bókasafnskort. Fyrrverandi nemendur geta keypt kort vilji þeir nýta sér safnkost BUHR. Árskort kostar kr. 2.500

BUHR = Bókasafn og upplýsingaþjónusta HR - Stytt heiti.

Upp   Upp / Up

D
Drykkir - Leyfilegt er að hafa drykki í lokuðum ílátum á bókasafninu. Munið að henda tómum ílátum í ruslið.

E

Endurnýjun lána - Skráðu þig inn á  leitir.is og endurnýjaðu lánin þín sjálfur.  Bókasafnið úthlutar lykilorði.  Einnig getur þú óskað eftir endurnýjun lána með tölvupósti á bokasafn@ru.is eða í síma 599 6234.

F
Facebook - Bókasafn HR er á Facebook - facebook.com/bokasafn.

Farsímar - Símtöl eru ekki leyfð á bókasafninu. Stillið símann á "silent" og svarið í hann utan safnsins.  

Fartölvur - Leyfilegt er að nota fartölvur í rými safnsins svo lengi sem notkun þeirra truflar ekki aðra.

Fjaraðgangur - Þegar þú ert utan HR netsins veitir fjaraðgangurinn aðgang að flestum gagnasöfnum og tímaritum í áskrift BUHR. Fjaraðgangurinn nær einnig yfir gagnasöfn í landsáskrift svo hægt sé að komast í þau erlendis frá. Ekki þarf að nota fjaraðganginn til að nota gagnasöfn og tímarit sem læst eru með lykilorðum. Upplýsingar um þau er að finna á vefsíðunni um læst gagnasöfn.

Flokkun bóka - BUHR raðar bókum í hillur samkvæmt flokkunarkerfi Deweys (The Dewey Decimal Classification System (DDC)). Sérhver bók fær raðtákn sem segir til um hvar í hillu bókina er að finna. Dæmi: Bókin Um lög og lögfræði eftir Sigurð Líndal frá árinu 2003 fær raðtáknið 340 Sig 2003. Í gegnir.is er sérstakur dálkur sem heitir „Raðtákn“. Í leitir.is er raðtákn í dálkinum „Hillustaðsetning“. 

Frátektir - Þeir sem skrá sig inn í gegnir.is eða leitir.is geta sjálfir tekið frá bækur sem eru í útláni. Lánþegi fær tilkynningu með tölvupósti þegar bókinni er skilað á safnið. Bókin er geymd í afgreiðslu BUHR í viku frá því lánþega er send tilkynning. Sjá leiðbeiningar um frátektir á leitir.is

Fyrirspurnir - Hafið samband ef þið hafið spurningar, athugasemdir eða tillögur sem þið viljið koma á framfæri. Sendið okkur tölvupóst á bokasafn@ru.is eða hringið í afgreiðslu bókasafnsins í síma 599 6234. Einnig býður BUHR uppá „spjall“ á heimasíðu safnsins og á facebook.  

Upp   Upp / Up

G

Gestaaðgangur - Aðilum utan HR sem heimsækja safnið býðst aðgangur að netinu og gagnasöfnum í áskrift BUHR á afgreiðslutíma. Vinsamlegast hafið samband við starfsmann í afgreiðslu til að fá frekari upplýsingar.

Gagnasöfn - Öllum er heimilt að nota gagnasöfn sem BUHR kaupir í áskrift úr tölvum BUHR. Annar aðgangur er mismunandi og fer eftir samningum safnsins við útgefendur. Aðgangur getur verið bundinn við aðgangsorð, við allar tölvur Háskólans í Reykjavík (HR-net) eða allar tölvur á Íslandi. Athugið að gagnasöfnum í áskrift fylgir tákn sem segir til um hvernig aðgangi er háttað:
[+] = aðgengilegt frá neti HR (IP tölur) og fjaraðgangur
[*] = aðgangsorð, ekki þarf að nota fjaraðgang
[#] = landsáskrift, allar tölvur á Íslandi, og fjaraðgangur einungis erlendis frá
[~] = aðgengilegt frá neti HR (IP tölur)
[!] = einungis aðgengilegt í bókasafninu

Gegnir - Í bókasafnskerfi BUHR, Gegni er hægt að fá upplýsingar um hvað er til á prenti, bæði hjá BUHR og í öðrum íslenskum söfnum og kanna hvort gögn eru inni á söfnum eða í útláni. Með innskráningu geta notendur fengið upplýsingar um eigin útlán, framlengt þau og tekið frá efni. Þegar notandi hefur skráð sig inn kemur upp nýr flipi í Gegni, Mínar síður. Starfsfólk í afgreiðslu BUHR gefur frekari upplýsingar um innskráningu í Gegni.

Greinapantanir - Ef BUHR hefur ekki aðgang að grein sem þig vantar getum við pantað hana fyrir þig frá öðru bókasafni, sjá millisafnalán (greina- og bókapantanir)

Greinar - BUHR er áskrifandi að fjölmörgum gagnasöfnum á fræðasviðum HR. Þar er m.a. hægt að nálgast fjöldan allan af tímaritsgreinum, margar þeirra hafa birst í fræðilegum og ritrýndum tímaritum. Oft er allur texti greina aðgengilegur. Skoðið lista yfir gagnasöfn í áskrift: Gagnasöfn. Hægt er að slá heiti tímarits upp í tímaritalista og athuga hvort BUHR kaupir það í áskrift: Tímarit og tímaritsgreinar. Þar er einnig hægt að leita eftir titlum erlendra tímaritsgreina.

H
Heimildaleitir - Upplýsingafræðingar BUHR bjóða persónulega aðstoð við að leita og vinna með heimildir. Bókaðu tíma í heimildaleit.  Sjá einnig Upplýsingaþjónusta

Heimildaskráning - Upplýsingafræðingur aðstoðar við heimildaskráningar og kennir á hjálparforrit. Hafðu samband við okkur til að fá aðstoð eða bóka tíma.

Heimilisfang -
Háskólinn í Reykjavik
Bókasafn og upplýsingaþjónusta HR (BUHR)
Menntavegur 1, Nauthólsvík
101 Reykjavík

afgreiðsla og útlán, sími 599 6234
upplýsingaþjónusta, sími: 599 6235
Netfang: bokasafn@ru.is

Höfundaréttur

- Sjá almenna umfjöllun á rafræna bókasafninu: Um höfundarétt


I

Internet
- Aðilum utan HR sem heimsækja safnið býðst aðgangur að netinu og gagnasöfnum í áskrift BUHR á afgreiðslutíma. Vinsamlegast hafið samband við starfsmann í afgreiðslu til að fá frekari upplýsingar.

Upp   Upp / Up

L

Leitir.is er leitargátt sem veitir frá einum stað upplýsingar um safnkost flestra bókasafna á Íslandi (gegnir.is)
og veitir auk þess aðgang að rafrænu efni, bæði að texta og myndum frá völdum sérsöfnum, svo sem Hvar.is, Tímarit.is, Skemmunni og Ljósmyndasafni Reykjavíkur.  Nánar um gagnasöfnin í leitir.is hér.

Með því að skrá sig inn í leitir.is er hægt  skoða útlán og endurnýja þau og taka frá efni sem er í útláni.  Aðgangsorð
er hið sama og í gegnir.is. Hafðu samband við starfsfólk BUHR ef þig vantar lykilorð. Til hagræðis fyrir notendur er margt fleira í boði eins og að flytja færslur í heimildaskráningarforrit  svo eitthvað sé nefnt.

Leitartrix á Leitir.is

Lesaðstaða - Í bókasafninu er gott lesrými sem stendur öllum nemendum HR til boða. Gildir þar fyrirkomulagið „fyrstir koma, fyrstir fá“, en óheimilt er að taka frá borð. Starfsfólki er heimilt að rýma borð sem hafa staðið ónotuð lengur en klukkustund. Áhersla er lögð á að það ríki friður og ró á bókasafninu og að nemendur geti einbeitt sér að náminu án truflunar frá símhringingum og skvaldri. Heimilt er að nota fartölvur á meðan gestir gera ekki athugasemdir við það. Í safninu gilda almennar umgengnisreglur HR varðandi meðferð matar og drykkjar: Enginn matur er leyfilegur, en heimilt er að vera með drykki í lokuðu íláti.

Ljósritun - Tvær ljósritunarvélar er í prentstofu fyrir utan safnið. Hægt er að kaupa kort í vélarnar í aðalmóttöku skólans í Sólinni.

Lokaritgerðir - Eintak af öllum lokaritgerðum er varðveitt hjá BUHR. Eintökin eru ýmist geymd í Námsbókasafni eða geymslu og eru aðeins lánuð til lestrar á safninu. Námsritgerðir HR eru leitarbærar í bókasafnskerfinu Gegni. Undantekning frá þessari reglu eru lokaritgerðir nemenda í MBA námi í viðskiptadeild. Frá og með 2010 eru eintök lokaritgerða einnig varðveitt í varðveislusafni íslenskra háskólabókasafna, Skemmunni, ýmist opin eða lokuð.

Lykilorð - Lykilorð að gagnasöfnum og tímaritum í áskrift BUHR er að finna á lykilorðasíðu BUHR ásamt á vefsíðu gagnasafna. Athugið að samkvæmt samningum BUHR við eigendur og framleiðendur gagnasafna eru lykilorðin eingöngu ætluð stúdentum, kennurum og starfsmönnum Háskólans í Reykjavík og því er með öllu óheimilt að afhenda þau fólki utan HR.

K
Kennslubækur -
Eintak af kennslubókum yfirstandandi misseris er að finna í námsbókasafni BUHR, í afgreiðslu safnsins. Kennslubækur eru aðeins lánaðar til afnota á safni. Talið við starfsmann í afgreiðslu til að fá þær lánaðar.

M
Matur - Það er EKKI leyfilegt að borða á bókasafninu. Við bendum á Sólina og Málið til að seðja hungrið. Sjá einnig Drykkir.

Mínar síður - í Gegni
Allir nemendur og kennarar HR sem eru skráðir inn í bókasafnskerfi BUHR, Gegni, hafa aðgang að flipanum „Mínar síður“  á vefsetrinu gegnir.is Notendur skrá sig á heimasíðu Gegnis, kennitölu sína í efri reitinn (númer), seinni fjórar tölurnar (lykilorð) getur þú valið hjá þínu bókasafni. Hafið samband við afgreiðslu BUHR ef vandamál koma upp við innskráningu. Að innskráningu lokinni er mögulegt að skoða efni í útláni, endurnýja útlán, taka frá efni (frátektir), sjá sögu útlána (síðustu 100) og panta millisafnalán. Leiðbeiningar um "Mínar síður" má finna á heimasíðu Gegnis.

Millisafnalán - BUHR pantar bækur og ljósrit af tímaritsgreinum úr tímaritum, sem eru ekki til í safninu. Þjónustan er kennurum og starfsmönnum að kostnaðarlausu.

N

Námsbækur - Sjá Kennslubækur

Námsefni - Allir kennarar við Háskólann í Reykjavík geta sent beiðni til BUHR vegna kaupa á efni sem þeir þurfa að nota í námskeiðum sínum. Auk eintaka af kennslubókum eru ítarefnisrit staðsett í Námsbókasafni til að tryggja nemendum sem jafnastan aðgang að þeim. Kennarar geta einnig beðið um að bækur úr safninu séu staðsettar í Námsbókasafni. Kennarar geta ákveðið hvernig útlánum á efni þeirra í Námsbókasafni er háttað. Annað efni sem kennarar leggja inn í Námsbókasafn eru tilviksathuganir (e. case), dómar o.fl. Greinar til kennslu má leggja rafrænt inn á heimasvæði námskeiðs kennsluvef (MySchool). Sjá nánar á rafræna bókasafninu: Námsbókasafn

Upp   Upp / Up

O
Orðabækur
- BUHR á ágætt úrval orðabóka. Orðabækur eru hluti af handbókasafni BUHR og eru til afnota á safni. BUHR á einnig nokkurn forða orðabóka á rafrænu formi, sem við mælum með að fólk kynni sér. Rétt er að benda sérstaklega á að BUHR kaupir áskrift fyrir starfsmenn og nemendur HR að öllum veforðabókum á snara.is.

P
Prentun
- Prentarar eru í prentstofu sem er fyrir framan bókasafnið. Prentararnir heita U_1_safn og U_1_safn_color. Sá síðarnefndi prentar bæði í A4 og A3.

R

Rafrænt bókasafn - BUHR leggur sérstaka áherslu á að nýta möguleika upplýsingatækninnar í starfsemi sinni og er áhersla lögð á rafræn gögn og rafrænt bókasafn. Liður í því er að bjóða viðskiptavinum aðgang að fjölbreyttu efni á rafrænu formi og er stefna safnsins að nemendur, kennarar og starfsmenn HR hafi aðgang að rafrænu efni á sínum fræðasviðum sambærilegan við það sem best gerist í alþjóðlegu háskólasamfélagi. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu rafræna bókasafnsins: Gagnasöfn

Ritgerðir - Eintak af öllum lokaritgerðum er varðveitt hjá BUHR. Ritgerðirnar eru ýmist geymdar í Námsbókasafni eða geymslu og eru aðeins lánaðar til lestrar á safninu. Námsritgerðir HR eru leitarbærar í bókasafnskerfinu Gegni. Undantekning frá þessari reglu eru lokaritgerðir nemenda MBA námi í viðskiptadeild. Frá og með 2010 eru eintök lokaritgerða einnig varðveitt á rafrænu formi í varðveislusafni íslenskra háskólabókasafna, Skemmunni.

S

Safnkostur - Safnkostur BUHR er fyrst og fremst bækur og tímarit, og stærstur hluti safnkosts er á rafrænu formi. Kaup safnsins taka mið af því að styðja og efla sköpun og miðlun þekkingar á fræðasviðum skólans. Safnið kaupir aðgang að gagnasöfnum og tímaritum, auk bóka. Einnig er að finna á safninu Alþingistíðindi, Stjórnartíðindi, dómasöfn, kennslubækur á yfirstandandi önn, lokaritgerðir auk lítils safns af DVD-myndum til stuðnings við tungumálakennslu. Safnkosturinn er einkum á ensku og íslensku.

Saga - Bókasafn og upplýsingaþjónusta HR (BUHR) var opnað formlega í janúar 1999 af Birni Bjarnasyni þáverandi menntamálaráðherra. Frá upphafi hefur það verið yfirlýst stefna stjórnenda að nýta upplýsingatæknina sem mest við uppbyggingu safnsins og er það að stærstum hluta rafrænt. Árið 2003 hófst rekstur Miðstöðvar Evrópuupplýsinga (EDC) á safninu. Miðstöðin var grundvölluð á samningi milli Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og Evrópuréttarstofnunar HR. Frá sameiningu Tækniháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík árið 2005, starfrækti BUHR bókasafn á tveimur stöðum. Lengst af á Höfðabakka og í Ofanleiti, en á vormisseri 2010 í Ofanleiti og í Nauthólsvík. Eftir flutning í Nauthólsvík er BUHR staðsett til í Úranusi á 1. hæð. Fyrsti forstöðumaður safnsins var Sólveig Þorsteinsdóttir, 1998 - 2001, en forstöðumaður BUHR frá 2001 er Guðrún Tryggvadóttir.

Skemman - Frá og með 2010 eru rafræn eintök lokaritgerða varðveitt í varðveislusafni íslenskra háskólabókasafna, Skemmunni.

 

Skönnun - Hægt er að skanna í ljósritunarvélum í prentaraherberginu framan við bókasafnið.

Starfsfólk - Fastir starfsmenn BUHR eru 7 í rúmlega 6 stöðugildum, 6 upplýsingafræðingar og 1 bókavörður. Auk fastra starfsmanna starfa nemendur við afgreiðslu og uppröðun á safninu.

Upp   Upp / Up

T
Tímarit
- BUHR er áskrifandi að fjölmörgum rafrænum tímaritum á fræðasviðum HR. Flest íslensku tímaritanna eru eingöngu til á prenti, og er þeim raðað í stafrófsröð í hillur fremst í safninu. Tímaritshefti eru EKKI lánuð út.

Tækjastikur - BUHR hefur búið til tækjastikur þar sem rafrænum safnkosti hefur verið safnað saman. Boðið er upp á "eina með öllu" og svo sérsniðnar fyrir hverja deild.

Twitter - Fylgstu með okkur á Twitter - twitter.com/bokasafn

U
Upplýsingalæsi

- Starfsfólk BUHR veitir kennslu í upplýsingalæsi, bæði á safninu og í einstökum námskeiðum í deildum skólans. Kennslan getur verið almenns eðlis þar sem kennt er á Gegni og Google, en einnig sérhæfðari og markvissari, þar sem farið er í einstaka gagnagrunna í áskrift BUHR.


Upplýsingaþjónusta - Upplýsingafræðingar eru með fasta viðtalstíma í upplýsingaþjónustuborði á safninu alla virka daga. Einnig er hægt að bóka tíma. Undir þessa þjónustu fellur allt sem viðkemur upplýsinga- og heimildaleit, sem og heimildaskráningu og notkun hjálparforrita við heimildaskráningar eftir því sem við á. Frekari upplýsingar veitir Ragna Björk Kristjánsdóttir ragnabjork@ru.is s. 599 6235.

Útlán - Útlánstími bóka er að öllu jöfnu 4 vikur, að undanskildum kennslubókum og lokaritgerðum. Inni á gegnir.is er hægt að skrá sig inn og endurnýja útlán tvisvar áður en lánstími rennur út, og á meðan engin frátekt er á bókinni. Tímaritshefti eru ekki lánuð út. Upplýsingar um efni á prenti í HR og á öðrum íslenskum söfnum er að finna í bókasafnskerfinu Gegni. Fáið aðstoð í afgreiðslunni ef með þarf.
Sjá einnig Vanskil og Frátektir.

V
Vanskil
- Tilkynningar um vanskil (rukk) eru sendar í tölvupósti. Útlánstími gagna kemur fram á kvittun lánþega og einnig geta lánþegar aflað sér upplýsinga um hann með því að nota „Mínar síður“ í Gegni.  Virði lánþegi ekki útlánstíma og sinni ekki tilkynningum um vanskil áskilur safnið sér að taka viðkomandi af lánþegaskrá þar til útistandandi gögnum hefur verið skilað og senda reikning vegna glataðra safngagna Sjá einnig Útlán.

Vefspjall við upplýsingafræðing. Almennar fyrirspurnir og aðstoð vegna heimildaleita og heimildaskráningar. Þegar Upplýsingafræðingurinn er „á línunni" er svarað um hæl, annars er hægt að skilja eftir netfang og skilaboð og þá er svarað í tölvupósti eins fljótt og hægt er.

Verðskrá - Í verðskrá má sjá hvað einstakir liðir þjónustu bókasafnsins kosta.

Þ
Þjónusta
- BUHR býður viðskiptavinum sínum alla almenna bókasafns- og upplýsingaþjónustu, s.s. útlán, millisafnalán og upplýsingaleitir, auk sértækari þjónustu. Má þar nefna árvekniþjónustu, upplýsingaþjónustu, aðstoð við heimildaleit og  -skráningu, kennslu í upplýsingalæsinámsbókasafn og fleira. Þjónusta BUHR er einkum ætlum nemendum, kennurum og starfsmönnum HR.

Upp   Upp / Up




 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica