Rekstrariðnfræði
Nám í rekstrariðnfræði við Háskólann í Reykjavík er 30 ECTS eininga nám í rekstrargreinum til viðbótar iðnfræðináminu. Þeir sem ljúka náminu hljóta starfsheitið rekstrariðnfræðingur. Námið tekur tvær annir og er kennt í fjarnámi.
Nám í rekstrariðnfræði er gríðarlega góð viðbót fyrir marga iðnfræðinga og því tilvalið að skoða þennan valkost vel.
,,Eftir að ég lauk námi rafiðnfræði fór ég í rekstrariðnfræði þar sem stjórnun og rekstur fyrirtækja er á mínu áhugasviði. Í rekstrariðnfræðinni er farið djúpt í fjármál fyrirtækja með það að markmiði að greina rekstur þeirra, hvernig lesa á ársreikninga fyrirtækja og greina stöðu þeirra út frá þeim
Ég mun útskrifast úr Rekstrariðnfræði í júní 2010 en námið er strax farið að nýtast mér í starfi og daglegu lífi."Kristján Þórður Snæbjarnason, nemi í rekstrariðnfræði
Námskeiðin sem kennd eru:
Haustönn:
Hagfræði
Fjármál fyrirtækja
Vorönn:
Fjármálastjórn
Rekstrargreining
Nýsköpun og stofnun fyrirtækja
Lýsingar á efnisinnihaldi námskeiðanna má finna í kennsluskrá (Diploma í rekstrariðnfræði).
Til að hefja nám í rekstrariðnfræði þurfa nemendur að hafa lokið prófi í byggingar-, vél- eða rafiðnfræði.
Umsóknum skal skila rafrænt á http://www.hr.is/.
Nánari upplýsingar gefa Vilborg Jónudóttir vilborg@ru.is og Jens Arnljótsson jensarn@ru.is , sími .

Kristján Þórður Snæbjarnason, nemi í rekstrariðnfræði


