Fylgigögn með umsókn

Við mat á umsóknum er tekið tillit til einkunna á stúdentsprófi, frumgreinaprófi HR, frekari menntunar, starfsreynslu, þátttöku í félagsstörfum og áhugamála. Umsækjendur eru því hvattir til að gera grein fyrir öllu því sem þeir telja geta orðið umsókn sinni til framdráttar.

Hvað þarf að fylgja með umsóknum fyrir BS-nám í íþróttafræði

  • Staðfest afrit af stúdentsprófskírteini
    Skila þarf staðfestum einkunnum frá öðrum skólum ef áfangar eru metnir.
  • Upplýsingar um aðra menntun
    Ef umsækjandi hefur ekki lokið stúdentsprófi en telur sig vera með sambærilegt nám að baki er nauðsynlegt að skila inn yfirliti af námsárangri frá viðkomandi skóla.
  • Staðfesting á þjálfun frá vinnuveitanda (ef við á)
  • Staðfesting á kennslu frá vinnuveitanda (ef við á)
  • Staðfesting á íþrótta- og æskulýðsþátttöku frá þjálfara (ef við á)
  • Upplýsingar um tvo meðmælendur

 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica