1. Prófgráður og forkröfur
Íþróttafræði við tækni-og verkfræðideild veitir prófgráðuna BSc í íþróttafræði. Gráðan er veitt að loknu 180 ECTS námi við deildina með fullnægjandi árangri
Hlutverk námsins er:
-
Að búa nemendur undir leiðtogastörf hjá ungmenna- og íþróttafélögum, stofnunum, heilsuræktarstöðvum, ríki og sveitarfélögum.
-
Að búa nemendur undir þjálfun hópa með ólíkar þarfir.
-
Að búa nemendur undir vinnu að forvarnarmálum og heilsueflingu.
-
Að búa nemendur undir kennslustörf í íþróttum í skólum landsins og þjálfun hjá íþróttafélögum.
-
Að búa nemendur undir frekara nám
Umsækjandi um BSc í íþróttafræði við Tækni-og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík skal hafa lokið stúdentsprófi. Sérstök undanþága á þessari meginreglu er veitt í einstökum tilfellum, s.s. ef nemendur eru eldri en 25 ára og með framúrskarandi reynslu á sviði íþrótta. Almennt er tekið tillit til reglubundinnar þátttöku í íþróttum og félagsstörfum, tengdum íþróttum og æskulýðsstörfum. Nemandi skal vera heilbrigður og vel hæfur til íþróttaiðkana (deildin kann að krefjast heilbrigðisvottorðs). Inntökupróf er haldið í íþróttafræði fyrsta laugardag í júní ár hvert.
2. Uppbygging náms
180 ECTS nám í íþróttafræði. Einingafjöldinn skiptist á eftirfarandi hátt.
Fyrsta og annað ár (annir 1 – 4):
120 ECTS í kjarna sem allir nemendur taka:
- 60 ECTS í uppeldis- og kennslufræðum
- 60 ECTS í íþróttafræði
Þriðja ár (annir 5 – 6):
36 ECTS í kjarna
- Verknám
- Íþróttafræði
- Lokaverkefni
24 ECTS í vali
- Áhersla á íþróttaþjálfun eða heilsuþjálfun
- Valnámskeið
3. Kennsluhættir og vinnubrögð
Námstíminn er þriggja ára staðarnám og fer námið fram í Háskólnaum í Reykjavík, Valsheimilinu Hlíðarenda og í íþróttamannvirkjum í Laugardal í Reykjavík. Nemendur stunda bóklegt og verklegt nám. Námskeið byggjast á almennum fyrirlestrum, verklegum tímum, verklegum rannsóknar æfingum, umræðutímum og vettvangsnámi. Á þriðja námsári hafa nemendur kost á valnámskeiðum og sérhæfingu á sviði íþróttaþjálfunar eða heilsuþjálfunar í góðum tengslum við samfélag og atvinnulíf. Nemendur fara í útivistarferðir, heimsóknir og skoðunarferðir til skóla, heilbrigðisstofnana og íþróttasamtaka. Stutt námskeið og fyrirlestrar verða í boði fyrir nemendur undir heitinu málstofur.
Nemendur hljóta verklega færni hjá skólum, stofnunum og fyrirtækjum. Í undantekningartilvikum getur deildarforseti ákveðið að tiltekið námskeið skuli ekki kennt eða fyrirkomulagi kennslu breytt. Þannig eru námskeiðslýsingar og stundaskrár birtar með fyrirvara um síðari breytingar. Námskeið eru í umsjón fastra kennara deildarinnar eftir ákvörðun sviðsstjóra/deildarforseta. Deildarforseta/sviðsstjóra er þó heimilt að fela stundakennurum umsjón námskeiða ef fastir kennarar anna ekki umsjón með þeim.
Um vinnubrögð, nám og próftöku nemenda í BSc-námi í íþróttafræði gild eftirfarandi reglur og viðurlög skólans; reglur HR um verkefnavinnu og siðareglur HR þar sem lögð er áhersla á siðferðileg vinnubrögð og viðurlög við ritstuldi.
4. Námsframvinda
BSc í íþróttafræði er 180 ECTS nám og skiptist það á þrjú ár (fyrsta, annað og þriðja). Almennt er gert ráð fyrir því að nemendur ljúki 30 ECTS á önn eða 60 ECTS á ári, miðað við eðlilega námsframvindu.
Einkunnir eru gefnar í tölum frá 0 til 10. Lágmarkseinkunn í hverju námskeiði, bóklegu og verklegu, er 5. Lágmarkseinkunnina 5 þurfa nemendur að ná í lokaprófi til að standast námskeið. Nái nemandi ekki 5 á lokaprófi telst hann fallinn í námskeiðinu, þrátt fyrir að öll önnur verkefni standist lágmarkseinkunn.
Krafist er 80% mætingar í námskeið, bæði bókleg og verkleg. Nemandi sem ekki stenst þær mætingarkröfur hefur fyrirgert rétti sínum til próftöku í viðkomandi námskeiði. Ekki er tekið við vottorðum vegna veikinda. Keppnisleyfi eru ekki veitt nema vegna ferða á vegum landsliða Íslands í íþróttum og Evrópukeppni félagsliða. Sækja verður um leyfi fyrirfram hjá sviðsstjóra íþróttafræðisviðs og skila inn skriflegri beiðni um leyfi frá viðkomandi sérsambandi eða félagsliði undirritað af ábyrgðaraðila félags eða sérsambands. Veikindi og aðrar fjarvistir verða að rúmast innan 20% frávika frá 100% mætingu.
Íþróttafögin skiptast í verklegan og bóklegan hluta. Samanlögð einkunn í verklegum og bóklegum hluta er lokaeinkunn í námskeiði. Nemendur þurfa að ná lágmarkseinkunn sem er 5 í hvorum hluta fyrir sig. Upptökupróf í bóklega hluta íþróttagreina er haldin á sama tíma og önnur bókleg upptökupróf í HR.
Nemanda er heimilt að innritast á annað námsár hafi hann lokið a.m.k. 48 ECTS af námsefni fyrsta árs, með meðaleinkunn 6 eða hærra. Til að hefja nám á þriðja ári þarf nemandi að hafa lokið a.m.k. 96 ECTS á fyrsta og öðru námsári, með meðaleinkunn 6 eða hærra. Nemandi skal hafa lokið BSc-prófi í síðasta lagi fjórum árum eftir síðustu innritun á fyrsta námsár nema námsmatsnefnd hafi veitt honum leyfi frá námi. Lengist þá framangreindur tímafrestur sem leyfinu nemur.
Nemendur eiga kost á að taka þátt í skiptinema áætlun HR sem gerir þeim kleift að taka hluta af námi sínu erlendis.
5. Hlutanám í BSc í íþróttafræði
Búi nemandi við sérstakar aðstæður sem koma í veg fyrir að hann geti stundað fullt nám, er í undantekningartilvikum gefinn kostur á hlutanámi í BSc í íþróttafræði við HR. Sækja skal sérstaklega um slíkt námsfyrirkomulag til sviðsstjóra BSc námsins. Leyfi til hlutanáms má veita með skilyrðum. Nemandi í hlutanámi skal hafa lokið BSc-prófi í síðasta lagi átta árum eftir síðustu innritun í fyrsta námsár nema námsmatsnefnd hafi veitt honum leyfi frá námi. Lengist þá framangreindur tímafrestur sem leyfinu nemur.
6. Forkröfur fyrir námskeið
Forkröfur fyrir einstök námskeið koma fram í kennsluskrá.
7. Hámarksfjöldi eininga sem nemandi getur tekið
Nemandi í BSc-námi í íþróttafræði getur skráð sig í 36 ECTS á önn að hámarki. Heimilt er að sækja um undanþágu til sviðsstjóra BSc náms í íþróttafræði, en slík undanþága er aðeins veitt hafi nemandi meðaleinkunn 7.5 eða hærri.
8. Reglur um próftöku
Nemandi í BSc námi í íþróttafræði sem stenst kröfur námskeið um 80% mætingu hefur próftökurétt í námskeiði. Nemandi sem er undir 80% mætingu í bóklegu eða verklegu námskeiði er fallinn í námskeiði og hefur ekki rétt til að mæta í lokapróf í námskeiðinu.
Nánari reglur um próf og próftöku má sjá í náms-og prófareglum HR.( http://www.ru.is/namid/ertu-ad-spa-i-hr/nams--og-profareglur-hr/)
9. Endurinnritun
Uppfylli nemandi ekki framangreind lágmarksskilyrði um námsframvindu samkvæmt reglum deildarinnar, fellur réttur hans til frekara náms við deildina niður. Nemandi getur þó sótt um endurinnritun í námið. Umsókn um endurinnritun skal vera skrifleg og skal send til verkefnastjóra BSc námsins í íþróttafræði. Sé nemanda veitt slík heimild heldur hann, sé þess óskað, einungis þeim námskeiðum sem hann hefur lokið með einkunn 6,0 eða hærri. Þessi réttur fyrnist á 6 árum frá lokum þeirrar annar sem námskeiðið var tekið á. Tækni-og verkfræðideild áskilur sér þann rétt að hafna nemendum um endurinnritun.
10. Námshlé
Nemandi getur sótt um leyfi til að gera hlé á námi sínu. Umsóknina skal senda til sviðsstjóra íþróttafræðisviðs. Beiðninni skulu fylgja fullnægjandi gögn sem sýna að gildar ástæður séu fyrir henni. Meðal þeirra ástæðna sem réttlætt geta námshlé eru t.d. barnsburður eða veikindi. Leyfi til námshlés má veita með skilyrðum. Hámarkstími námshlés er eitt ár. Óski nemandi eftir lengra leyfi frá námi þarf hann að sækja um það sérstaklega. Beiðni um framlengingu námshlés skulu fylgja fullnægjandi gögn sem sýna að gildar ástæður séu fyrir slíkri framlengingu.
11. Skipulag náms og stundatafla
Kennsla í Háskólanum í Reykjavík í íþróttafræði er innan skólatíma rammans frá kl. 8:30-16:30. Námskeiðin Sérhæfð íþróttaþjálfun og Sérhæfð heilsuþjálfun eru unnin í samvinnu við atvinnulífið/samfélagið og geta því orðið að hluta fyrir utan þennan skólatíma ramma.
12. Mat á fyrra námi
Nemandi getur óskað eftir því að fá námseiningar úr óloknu BEd-, BA- eða BSc-námi við aðrar deildir eða háskóla metnar sem hluta af námi í BSc í íþróttafræði við Tækni-og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík teljist viðkomandi námskeið sambærileg við skyldu- og/eða valnámskeið til viðkomandi gráðu. Starfsreynsla er ekki metin sem hluti af námi enda skal nemandinn í námi sínu leitast við að auka þekkingar- og reynslugrunn sinn. Að ósk nemanda getur matið farið fram áður en nám hefst, enda sé nemandi skráður í námið og leggi fram fullnægjandi gögn um inntak námsins. Erindi um slíkt mat á fyrra námi verða afgreidd af námsmatsnefnd og eru þau lögð fyrir deildarráð til kynningar og mats.
Nánari reglur um mat á fyrra námi
- Nemandi sem óskar mats á fyrra námi á BSc-stigi vegna námskeiðs eða námskeiða í Tækni og verkfræðideild þarf að sækja um slíkt mat fyrir 1. ágúst vegna haustannar og 1. desember vegna vorannar. Umsókn skal vera skrifleg og studd fullnægjandi gögnum um það nám sem óskast metið. Umsóknina skal senda til verkefnastjóra BSc náms í íþróttafræði.
- Sækja þarf um mat á fyrra háskólanámi á sérstökum umsóknareyðublöðum sem hægt er að fá á skrifstofu HR eða á heimasíðu skólans.
- Til að nám fáist metið þarf það að inntaki og umfangi að vera sambærilegt við það námskeið sem óskað er að sleppt sé. Eingöngu nám á háskólastigi kemur til álita.
- Það er almennt skilyrði þess að námskeið fáist metið í íþróttafræði að ekki séu liðin meira en fimm ár frá lokum þess náms sem óskað er mats á og umsækjandi hafi staðist þær lágmarkskröfur sem gerðar voru til einkunnar í því námi enda séu þær ekki minni en einkunnakröfur vegna endurinnritunar við Tækni-og verkfræðideild HR.
- Mat á fyrra námi getur að jafnaði ekki numið meira en 48 ECTS samtals. Í undantekningar-tilvikum getur þessi hámarkseiningafjöldi farið upp í 60 ECTS teljist námsárangur framúrskarandi góður.
- Fyrra nám er ekki metið fyrr en formleg umsókn hefur verið samþykkt og staðfestingargjald greitt.
- Ákvörðun um hvort fyrra nám skuli metið eru í höndum námsmatsnefndar.
Gögn sem þurfa að fylgja með umsókn um mat á fyrra námi:
- Umsókn um mat á fyrra námi.
- Staðfest afrit af einkunnum frá viðkomandi háskóla.
- Námskeiðslýsingar frá viðkomandi háskóla (þær þurfa að vera frá því ári sem námskeiðin voru tekin).
- Rökstuðningur nemanda um hvers vegna námskeið eru jafngild.
- Ef um nám erlendis er að ræða skulu upplýsingar um einkunnakvarða, kröfur og aðila sem hægt er að hafa samband við varðandi námskeið og einkunnagjöf fylgja.
Við mat á því hvort námsárangur nemanda erlendis hafi verið fullnægjandi skal miðað við kröfur þess háskóla sem nám var stundað við. Námsárangur nemanda vegna slíks náms skal skráður í námsferilsskrá hans sem fullnægjandi/ófullnægjandi, en einkunnir ekki gefnar í tölum, og reiknast því ekki inn í meðaleinkunn nemanda.
Að öllu jöfnu getur nemandi ekki fengið nám metið til BSc í íþróttafræði sem hann hefur notað til annarrar prófgráðu áður.
Ekki er hægt að fá námskeið metið að hluta. Til að námskeið fáist metið þarf að sýna fram á að það hafi verið sambærilegt a.m.k. að 2/3 við það námskeið sem það á að koma í staðinn fyrir. Ef óskað er eftir því að fyrra nám verði metið sem valnámskeið þarf námsmatsnefnd að fjalla um málið á sama hátt og önnur valnámskeið.
13. Undanþágur
Undanþágur frá þessum reglum um námsframvindu er aðeins veittar með samþykki deildarforseta Tækni-og verkfræðideildar. Undanþágur eru ekki veittar nema gildar ástæður komi til, svo sem barnsburður, fötlun eða alvarleg veikindi námsmanns eða náins aðstandanda. Umsóknin skal send til sviðsstjóra BSc-náms í íþróttafræði. Umsókn um undanþágu skal vera skrifleg og studd viðeigandi gögnum, svo sem læknisvottorði.

