Nemandi getur óskað eftir því að fá námseiningar úr óloknu BEd, BA eða BSc námi við aðrar deildir eða háskóla metnar sem hluta af námi í BSc í íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík teljist viðkomandi námskeið sambærileg við skyldu- og/eða valnámskeið til viðkomandi gráðu. Starfsreynsla er ekki metin sem hluti af námi enda skal nemandinn í námi sínu leitast við að auka þekkingar- og reynslugrunn sinn. Að ósk nemanda getur matið farið fram áður en nám hefst, enda sé nemandi skráður í námið og leggi fram fullnægjandi gögn um inntak námsins. Erindi um slíkt mat á fyrra námi verða afgreidd af námsmatsnefnd og eru þau lögð fyrir deildarráð til kynningar og mats.
Nánari reglur um mat á fyrra nám:
- Nemandi sem óskar mats á fyrra námi á BSc stigi vegna námskeiðs eða námskeiða þarf að sækja um slíkt mat fyrir 1. ágúst vegna haustannar og 1. desember vegna vorannar. Umsókn skal vera skrifleg og studd fullnægjandi gögnum um það nám sem óskast metið.
- Sækja þarf um mat á fyrra háskólanámi á sérstökum umsóknareyðublöðum sem hægt er að fá á skrifstofu HR eða á netinu.
- Til að nám fáist metið þarf það að inntaki og umfangi að vera sambærilegt við það námskeið sem óskað er að sleppt sé. Eingöngu nám á háskólastigi kemur til álita.
- Það er almennt skilyrði þess að námskeið fáist metið að ekki séu liðin meira en fimm ár frá lokum þess náms sem óskað er mats á og umsækjandi hafi staðist þær lágmarkskröfur sem gerðar voru til einkunnar í því námi enda séu þær ekki minni en einkunnakröfur vegna endurinnritunar við deildina.
- Mat á fyrra námi getur að jafnaði ekki numið meira en 42 ECTS samtals.
- Fyrra nám er ekki metið fyrr en formleg umsókn hefur verið samþykkt og staðfestingargjald greitt.
- Ákvörðun um hvort fyrra nám skuli metið eru í höndum námsmatsnefndar
Gögn sem þurfa að fylgja með umsókn um mat á fyrra námi:
- Umsókn um mat á fyrra námi, hér.
- Staðfest afrit af einkunnum frá viðkomandi háskóla.
- Námskeiðslýsingar frá viðkomandi háskóla (þær þurfa að vera frá því ári sem námskeiðin voru tekin).
- Rökstuðningur nemanda um hvers vegna námskeið eru jafngild.
- Ef um nám erlendis er að ræða skulu upplýsingar um einkunnakvarða, kröfur og aðila sem hægt er að hafa samband við varðandi námskeið og einkunnagjöf fylgja.
Við mat á því hvort námsárangur nemanda erlendis hafi verið fullnægjandi skal miðað við kröfur þess háskóla sem nám var stundað við. Námsárangur nemanda vegna slíks náms skal skráður í námsferilsskrá hans sem fullnægjandi/ófullnægjandi, en einkunnir ekki gefnar í tölum, og reiknast því ekki inn í meðaleinkunn nemanda.
Að öllu jöfnu getur nemandi ekki fengið nám metið til BSc í íþróttafræði sem hann hefur notað til annarrar prófgráðu áður.
Ekki er hægt að fá námskeið metið að hluta. Til að námskeið fáist metið þarf að sýna fram á að það hafi verið sambærilegt a.m.k. að 2/3 við það námskeið sem það á að koma í staðinn fyrir. Ef óskað er að fyrra nám verði metið sem valnámskeið þarf námsmatsnefnd að fjalla um málið á sama hátt og önnur valnámskeið.
Nánari reglur um störf námsmatsnefndar má sjá í reglum um meistaranám.

