Beint í leiðarkerfi vefsins.
„Eftir að hafa stundað nám í viðskiptafræði við HR í fjögur ár með vinnu var val á skóla fyrir framhaldsnám auðvelt. Námskeiðin, aðstaðan og fólkið er það sem auðveldar valið á HR þegar kemur að háskólanámi."
„Þegar meistaranám í mannauðsstjórnun við HR var kynnt vorið 2011 fannst mér ég loks hafa fundið það sem ég leitaði að; nám á mannauðssviði með áherslu á viðskipti og rannsóknir. Námið hefur staðið undir öllum mínum væntingum."
„Þegar Háskólinn í Reykjavík bauð upp á meistaranám í stjórnunarreikningsskilum og viðskiptafærni fannst mér það heillandi valkostur sem fyllti í göt íslenskrar viðskiptaþekkingar."
„Meistaranám í fjármálum fyrirtækja við Háskólann í Reykjavík hefur reynst mér afar gagnlegt og lærdómsríkt. Helsta ástæðan fyrir því að ég valdi HR er það úrval af erlendum kennurum sem þar kenna."
Lesa meira
„Ástæða þess að ég valdi meistaranám í endurskoðun við Háskólann í Reykjavík er sú að miðað við minn bakgrunn í námi og vinnu taldi ég þetta nám styrkja mig í starfi."
„Ég valdi sálfræði við Háskólann í Reykjavík vegna þess að deildin er lítil sem gerir námið persónulegra og auðveldar aðgengi að kennurum.“
Lesa meira
„MPM nám við HR hefur fyllilega staðist væntingar mínar til þessa og gott betur. Ég valdi MPM því námið er vel skipulagt og sniðið til að auka skilning, dýpka fræðilega þekkingu og efla færni bæði á tæknilegum sviðum en ekki síður í mannlegum og siðfræðilegum þáttum verkefnastjórnunar."
Lesa meira
„MPM meistaranámið er afskaplega skemmtilegt og grípandi nám. Ég heillaðist ekki bara af fræðilegri nálgun námsins, heldur einnig af þeirri miklu vinnu sem farið er í hvað varðar mann sjálfan sem persónu."
Lesa meira
„MPM-nám í Háskólanum í Reykjavík er einstakt. Þar er listilega fléttað saman því sem máli skiptir í stjórnun verkefna af öllum stærðum og gerðum. Farið er vandlega í verkfræðilega þætti verkefnastjórnunar en ekki síður tekið á þeim mannlegu og siðfræðilegu málum sem verkefnastjóri þarf að geta tekist á við."
Lesa meira
„Íþróttafræði í HR er virkilega skemmtilegt, fjölbreytt og hagnýtt nám. Námið er mjög vel skipulagt. Það blandast saman af bóklegu og verklegu námi sem gerir skóladaginn mjög líflegan og skemmtilegan."
Lesa meira
„Ég valdi íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík eftir að hafa ráðfært mig við fyrri nemendur sem gáfu skólanum og náminu góðar umsagnir. Það sem hefur komið mér mest á óvart við námið er hvað aðstaðan í skólanum er góð."
„Það sem kom mér mest á óvart þegar ég byrjaði í Íþróttafræði við HR er auðvelt aðgengi að kennurum og upplýsingaflæði til nemanda er miklu meira en ég hafði þekkt úr fyrra námi."
Lesa meira
„Að hefja verkfræðinám getur verið strembið. Ég valdi Háskólann í Reykjavík vegna þeirra gæða í kennslu, og aðstöðu til náms, sem skólinn býður upp á. Þú færð persónulega og góða kennslu ásamt því að geta nálgast kennara og aukakennara á auðveldan hátt."
Lesa meira
„Ég er mjög ánægður með að hafa valið verkfræðina hjá Háskólanum í Reykjavík, þar sem námið er mjög krefjandi og skemmtilegt. Auk þess standa okkur góðir atvinnumöguleikar til boða að námi loknu."
Lesa meira
„Ef þig langar að leggja stund á skemmtilegt og krefjandi nám í verkfræði, í skóla með mikinn metnað, þá er Háskólinn í Reykjavík rétti skólinn. Ég valdi Háskólann í Reykjavík eftir að hafa kynnt mér vel þær námsleiðir sem í boði eru í verkfræði í skólum landsins."
Lesa meira
„Þegar ég hóf nám við tölvunarfræðideild HR voru væntingarnar miklar. Þar hafði ég heyrt af góðum og metnaðarfullum kennurum sem leggðu alúð sína í að gera mig að góðum tölvunarfræðingi."
Lesa meira
„Námið við tölvunarfræðideild HR er krefjandi, fjölbreytt, áhugavert og hagnýtt. Kennararnir eru áhugasamir um efnið og leggja sig fram við kennsluna."
Lesa meira
„Ég útskrifast með BSc-gráðu í hugbúnaðar-verkfræði frá tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík. Þessi þrjú ár sem ég hef verið hér í námi hafa reynst mér afar dýrmæt og eru þegar farin að nýtast mér utan veggja skólans."
Lesa meira
„Hugbúnaðarkerfi verða sífellt stærri, dreifðari og flóknari. Hugbúnaðar-verkfræði er fagið sem sér til þess að aðferðir og ferli við hugbúnaðargerð haldi í við þessa þróun."
Lesa meira
"What I find the greatest about studying at the School of Computer Science is the motivating atmosphere and how individual oriented the education is."
Lesa meira
"What I liked the most about being a student at the School of Computer Science were the people and the athmosphere there."
Lesa meira
„Eftir að hafa skoðað og borið saman nokkrar BSc-námsleiðir í sálfræði ákvað ég að velja Háskólann í Reykjavík. Nálgun kennara við kennslu er skemmtileg og fjölbreytt sem skapar létt og þægilegt andrúmsloft."
Lesa meira
„Nám í sálfræði við Háskólann í Reykjavík er einstaklega skemmtilegt og krefjandi. Úrvals flokkur kennara starfar við skólann. Þeir hvetja til umræðna og spurninga sem skerpir skilning á námsefninu auk þess sem tímarnir verða mun áhugaverðari þannig."
Lesa meira
"When I started the BSc program in psychology I was surprised by the fact that reading several hundred pages of challenging text could be so much fun. In my opinion feedback and a good communication between student and teacher are vital in order to reach the optimal learning experience."
Lesa meira
„Ég upplifi námið í HR sem afar krefjandi og lærdómsríkt. Skólinn gerir metnaðarfullar kröfur til nemenda sem þeir komast ekkert hjá að rísa undir. Yfirleitt gengur vel að nálgast kennara utan kennslustunda og taka þeir vel í allar fyrirspurnir."
„Það besta við sálfræðina er hversu námið er skemmtilegt og vel skipulagt. Kennslan einkennist af miklum metnaði kennara. Þá finnst mér frábært að allir sálfræðinemar fái tækifæri til að fara í vettvangsnám."
„Það besta við sálfræðina er að hún samtvinnar mannlega hegðun við vísindin og hjálpar okkur að skilja gjörðir okkar og ástæður þeirra. Ég valdi að stunda nám í sálfræði við Háskólann í Reykjavík því þar er persónuleg kennsla og þjónusta og áhersla á hagnýt verkefni."
Lesa meira
„Námið heillaði mig mjög mikið, ekki síst áherslan sem lögð er á þverfaglegt nám í HR. Aðstaðan, umhverfið og uppbygging á rannsóknarsetrum, auk stuðnings við nýsköpun er ástæða þess að ég kaus að stunda sálfræði við HR."
Lesa meira
„Sálfræði við HR er mjög skemmtilegt og krefjandi nám. Kennslan er lifandi og býður upp á skemmtilegar umræður auk þess eru kennararnir frábærir og óhræddir við að ausa úr viskubrunni sínum."
Lesa meira
„Ástæðurnar fyrir því að ég valdi að stunda nám við Háskólann í Reykjavík eru margvíslegar. Ég taldi HR geta veitt mér forskot inn á atvinnumarkaðinn að námi loknu."
Lesa meira
„Ég mæli hiklaust með viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík ef þú ert að leita að námi sem gerir miklar kröfur til nemenda."
Lesa meira
"The MSc programme in International Business at Reykjavík University is very demanding and equally rewarding."
Lesa meira