Umsagnir nemenda

Anna_Klara„Þegar meistaranám í stjórnun og eflingu mannauðs við HR var kynnt vorið 2011 fannst mér ég loks hafa fundið það sem ég leitaði að; nám á mannauðssviði með áherslu á viðskipti og rannsóknir. Námið hefur staðið undir öllum mínum væntingum. Aðstaðan í HR er frábær og kennararnir, bæði erlendir og íslenskir, allir sérfræðingar á sínu sviði. Námið fer allt fram á ensku sem er mikill kostur í alþjóðlegu umhverfi og tengingin við atvinnulífið er mikil frá fyrsta degi. Mikil áhersla á hópavinnu hefur aukið færni mína í að vinna með ólíku fólki, en í náminu er fólk frá ýmsum löndum með mismunandi bakgrunn. Ég er sannfærð um að nám í stjórnun og eflingu mannauðs gefur mér góðan grunn fyrir hvers kyns stjórnunarstörf."


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica