Evrópuupplýsingar (EUi) – EU in the World

Sími: 599 6410
Netfang: eui@ru.is
Veffang: www.ru.is/eui

Evrópuupplýsingar (European Info – EUi)

Evrópuupplýsingar (EUi) í Háskólanum í Reykjavík er hluti af upplýsingastefnu Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, “EU in the World”. Bókasafn Háskólans í Reykjavík hýsir EUi á Íslandi skv. samningi við Framkvæmdastjórn ESB. Evrópuupplýsingar eru möskvi í upplýsinganeti í löndum utan sambandsins. EUi er ein sinnar tegundar á Íslandi og hefur verið starfrækt síðan 2003 undir merkjum European Documentation Centre – EDC. 

Hlutverk

Hlutverk Evrópuupplýsinga er að stuðla að kennslu, hvetja rannsókna og miðla upplýsingum ESB; gera upplýsingar frá sambandinu aðgengilegar, bæði í háskólasamfélaginu og annars staðar. Evrópuupplýsingar leggja upplýsingar til  umræðunnar um Evrópusambandið þar sem það á við. 

Upphafsreitur leitar um ESB

Þegar finna þarf upplýsingar um Evróusambandið; frumvörp Evrópuþingsins, lög og reglugerðir sambandsins, dóma Evrópudómstólsins eða hverjar aðrar upplýsingar frá ESB og stofnunum þess er rétti staðurinn til að byrja leitina hjá Evrópuupplýsingum. 

Vertu í sambandi

Vefur Evrópusambandsins - europa.eu
ESB á YouTube.com
Myndir, myndbönd, hljóðskrár, "streaming"
Podcasts
RSS


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica