Vel sóttur fundur um gerendur kynferðisbrota
Fjölmenni var á opnum fundi í HR í dag þar sem fjallað var um gerendur kynferðisbrota gegn börnum. Meðal þess sem þar kom fram er að fleiri gerendur hafa leitað sér hjálpar vegna barnagirndar að undanförnu en alla jafna, í kjölfar umræðunnar um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum í janúar.
Þetta kom fram í máli Ólafs Arnar Bragasonar, réttarsálfræðings, en hann var einn frummælenda á fundinum.
Markmið með fundinum í HR var að koma á framfæri þekkingu og upplýsingum um gerendur í slíkum málum og fjölluðu erindin um gerendur út frá mörgum sjónarhornum.
Erindin voru sem hér segir:
- Gerendur kynferðisbrota gegn börnum samkvæmt dómum Hæstaréttar: Svala Ólafsdóttir, dósent við lagadeild HR.
- Óttinn við gerendur: Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði við HÍ.
- Tillögur að nýjum lagareglum um öryggisráðstafanir: Róbert R. Spanó, forseti lagadeildar HÍ og formaður refsiréttarnefndar.
- Hin mörgu andlit gerenda: Anna Newton, réttarsálfræðingur á Stuðlum og stundakennari við sálfræðisvið HR.
- Meðferð kynferðisbrotamanna: Hvað virkar? Ólafur Örn Bragason, réttarsálfræðingur hjá sálfræðistofunni Sálarheill. réttarsálfræðingur á Stuðlum og stundakennari við sálfræðisvið HR.
Hér má sjá viðtal við Ólaf Örn Bragason réttarsálfræðing í mbl sjónvarpi
