Svar ESB ekki dauðadómur yfir verðtryggingunni
Gunnar Þór Pétursson, sérfræðingur í Evrópurétti við lagadeild HR, telur að túlka þurfi varlega svar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um verðtryggða lánasamninga.
Í samtali við fréttastofu RÚV sagði Gunnar Þór að svarið sem slíkt hafi ekki neina lagalega þýðingu hér á landi. „Þetta er svar einnar af skrifstofum framkvæmdastjórnarinnar og í sjálfu sér ekki mat á íslenskum rétti heldur tæknilegar útlistanir á gildi ákveðinnar tilskipunar.“ Hann segir þó sjálfsagt að stjórnvöld hafi það til hliðsjónar þegar fjallað er um málið.
Nýtt sérfræðiálit, eða svarbréf, framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins við fyrirspurn Elviru Mendez Pinedo, prófessors í Evrópurétti, um hvort verðtryggingin standist tilskipun sambandsins hefur vakið nokkra athygli. Elvira og fleiri hafa sagt að svarið renni stoðum undir þá fullyrðingu að verðtryggðir lánasamningar hér á landi stangist á við lög um neytendalán.
- http://www.ruv.is/sarpurinn/hadegisfrettir/19022013/serfraedingur-hr-um-alit-framkvstjornar-esb
- http://www.ruv.is/frett/vill-fara-varlega-i-ad-tulka-svarid
