Nemendur úr REYST-námi HR kynntu rannsóknir sínar við Stanford-háskóla

Tækni til að leita að jarðhitasvæðum neðansjávar og samanburður á jarðvarmavirkjunum eru meðal rannsóknarefna þriggja nemenda sem útskrifuðust úr REYST fyrir stuttu.

Þeir Baldur Kárason, Carlos Atli Cordova Geirdal og Darren Atkins kynntu niðurstöður rannsókna sinna við Stanford-háskóla  í síðustu viku. Þeir útskrifuðust allir nýverið með mastersgráður í sjálfbærum orkuvísindum; Darren með MSc-gráðu í orkuvísindum (Sustainable Energy Studies) og Baldur og Carlos með MSc-gráðu í orkuverkfræði (Sustainable Energy Engineering). Háskólinn í Reykjavík stendur að REYST- meistaranámi í orkumálum, ásamt Íslenskum orkurannsóknum og Orkuveitu Reykjavíkur.

Ritgerð Baldurs heitir “Utilisation of offshore geothermal resources for power production.” Í henni rannsakar Baldur hversu eftirsóknarverð nýting á jarðvarma, sem finnst á sjávarbotni, er. Carlos Atli Cordova Geirdal kynnti rannsókn sína “Economic comparison between a well-head geothermal power plant and a traditional geothermal power plant” en í henni felst samanburður á jarðvarmavirkjunum. Markmiðið með rannsókninni er að finna tækni eða aðferð sem flýtir fyrir því að hægt sé að nýta endurnýjanlegan orkugjafa eftir að uppsprettan er fundin. Ein af ástæðum þess að jarðvarmaorka er ekki notuð meira í dag er hversu lengi það tekur að sýna hagnað af slíkum virkjunum. Darren Atkins kynnti rannsókn sína “Exploration techniques for locating offshore geothermal energy near Iceland” en í henni kannar hann hvernig hægt er að beita mismunandi jarðfræðilegri og jarðeðlisfræðileg tækni til að finna uppsprettur jarðhita á sjávarbotni við Íslands sem ekki hafa verið nýttar hingað til.