Ísland er þingræðisríki
Dr. Ragnhildur Helgadóttir, prófessor við lagadeild HR, sat fyrir svörum í Speglinum á föstudag og ræddi vantrausttillögu sem lögð var nýlega fyrir Alþingi.
Ragnhildur segir Ísland vera þingræðisríki og í því felist að Alþingi ráði því hverjir sitji í ríkisstjórn.
„Þar af leiðandi er það alveg föst regla að ef samþykkt er vantraust á ríkisstjórn, þá verður hún að fara frá eða rjúfa þing.“ Staðreyndin sé þó sú að ekki er mikið rætt um vantrausttillögur í lögum og reglum.
Aðeins hafa verið samþykktar þrjár vantrausttillögur frá því að þingræði var tekið upp hér fyrir röskum 100 árum. Vantraust var samþykkt á Hannes Hafstein ráðherra 1909, á Björn Jónsson 1911 og á minnihlutastjórn Ólafs Thors 1950.
Fram kemur í þættinum að ýmsir hafi gagnrýnt tillöguna sem Þór Saari lagði fram og fullyrt að hún sé ekki þingtæk. Ragnhildur segir að vantrausttillagan sem Þór Saari lagði fram hafi verið vel þingtæk og í samræmi við aðrar tillögur sem lagðar hafa verið fram.
