Þegar vel er sáð...
Samtök / félög sem vinna að almannaheill geta óskað eftir aðstoð nemenda og starfsmanna HR við ákveðin verk eða umsjón með verkefnum, einnig þeir einstaklingar sem hyggjast stofna almannaheillasamtök eða hafa hug á að stofna til verkefna í almannaþágu.
Stjórn Fræsins 2010 - 2011:
Sverrir Tryggvason, formaður
Eva Sigurbjörg Þorkelsdóttir
Tryggvi Guðbjörn Benediktsson
Lóa Jóhannsdóttir
Arnheiður Sigurðardóttir
Þegar Fræinu var hleypt af stokkunum, á 10 ára afmæli Háskólans í Reykjavík árið 2008, var það gert með eftirfarandi orðum:
,,Háskólinn í Reykjavík fagnar nú 10 ára starfsafmæli sínu sem einkarekinn háskóli. Á nýjum tug sáum við fræi ... fræi sem í frjósömum jarðvegi íslensks samfélags getur vaxið og orðið ein af styrkum stoðum þess ... tímgast - borið frjósaman ávöxt.
Við – skólinn, starfsfólk, núverandi og fyrrverandi nemendur, viljum leggja okkar af mörkum til að auka enn frekar samkeppnishæfni og lífsgæði í samfélaginu. Það gerum við nú með því að gefa samtökum í þriðja geiranum, sem stuðla að almannaheill, aðgang að þekkingarmiðlun sem byggir á alþjóðlegum grunni – skapar uppsprettur fyrir nýja þekkingu, nýsköpun og frumkvöðlastarf."

