Dæmi um verkefni

Stjórnarseta:

Seta í stjórn samtaka / sjálfseignarstofnunar – stjórnarstörf.

Faglegur stuðningur:

Þátttaka í undirbúningi átaks: Hvað þarf að gera? Hvert er best að snúa sér?
Vinnustaðir fatlaðra: Markaðsmál, vöruþróun, kostnaðargreining, verkferlar.
Góð ráð í upphafi stefnumótunarferlis.
Fyrirlestur um samningatækni.

Dæmi um rannsóknarverkefni/lokaverkefni:

Fjárhagslegur ábati af starfsemi þriðja geirans.
Þáttur almannaheillasamtaka í velferðarkerfinu.
Endurskipulagning vinnuferla hjá ákveðnum samtökum.
Áhrif þátttöku í félagastarfi á lýðheilsu.

Annað:

Gert er ráð fyrir að stærri verkefni geti unnist af hópi nemenda / kennara. Tilgreina þarf heiti samtaka, lýsingu verkefnis, tilgang og áætlað umfang. Starfsmenn og nemendur munu kappkosta að sinna þeim verkefnum sem berast eftir bestu getu en nauðsynlegt getur verið að forgangsraða verkefnum.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica