Þriðji geirinn samanstendur af samtökum og stofnunum sem starfa utan hins opinbera og eru hvorki hagnaðardreifandi, né hagnaðarsæknar ... þ.e. „non profit“ og „non-governmental“. Sjálfboðaliðar eru einkennandi fyrir þriðja geirann og hefur hann þar sérstöðu gagnvart hinum tveimur geirunum.
Samtök í þriðja geiranum gegna gríðarlega mikilvægu hlutverki. Þau spretta úr frjóum jarðvegi samfélags þar sem hagsmunir og þarfir eru ólíkar, þau snerta fólk á öllum stigum lífsins og eru farvegur nýrra hugmynda og viðhorfa. Þau fóstra hugsjónir og geta endurspeglað þann mikla kraft sem felst í samstöðu og samtakamætti. Sjá nánar.
Almannaheillasamtök:
Samtökum innan þriðja geirans hefur gjarnan verið skipt í tvo flokka.
Annar flokkurinn, almannaheillasamtök, nær yfir samtök (skipulagsheildir) sem vinna á einhvern hátt að bættum hag ótiltekins fjölda manna, annarra en þeirra sem reka og stýra félaginu. Félög eins og líknarfélög, hjálparsamtök/stofnanir, trúfélög, neytendafélög, menntastofnanir og menningarsamtök tilheyra þessum flokki. Í hvaða hópi hver skipulagsheild á heima getur verið flókið að ákvarða þar sem þær standa oft fyrir margþættri starfsemi. Sömu samtök geta til dæmis starfað sem líknarfélag, hjálparsamtök, hagsmunasamtök og trúfélag.
Hinn flokkurinn innifelur þau samtök sem ætlað er að sinna og efla hag félagsfólks, til að mynda húsfélög, stéttarfélög og félagastarfsemi atvinnuvega og vinnuveitenda.

