Nánar um þriðja geirann
Samkvæmt skilgreiningu á sjálfboðasamtökum sem kemur fram í samantekt Evrópusambandsins (1997) um málefni þriðja geirans einkennir slík samtök í einhverjum mæli að:
- Þau hafa einhverja formlega innri gerð.
- Þau eru ekki hagnaðardreifandi – þau hafa annan tilgang en þann að hámarka hagnað í þágu stjórnenda eða meðlima sinna.
- Þau eru sjálfstæð.
- Þeim er stýrt á óvilhallan og óeigingjarnan hátt.
- Þau eru virk á opinberum vettvangi í einhverjum mæli og starfsemi þeirra er að minnsta kosti að hluta ætlað að auka almannagæði.
Í handbók Sameinuðu þjóðanna (2003) um þriðja geirann fellur skilgreining á þriðja geiranum að þessu, hann er þar sagður samanstanda af einingum sem eru samtök eða stofnanir, ekki reknar í hagnaðarskyni eða hagnaðardreifandi, skipulagslega aðskildar frá yfirvöldum, sjálfstýrðar og án skylduaðildar.

