Hvað?

NÝTTU KRAFTINN

Aðstoð við uppbyggingu verkefnisins, ráðgjöf og handleiðsla við þátttakendur. Sjá nánar um verkefnið hér.

SJÁLBOÐALIÐASTÖRF NEMENDA SUMARIÐ 2009

Meðal verkefna má nefna t.d. aðkomu að heimasíðugerð fyrir Geðhjálp og Ljósið og vinasöfnun fyrir Barnaheill.

RÉTTINDI BARNA

Samtökin Réttindi barna stigu sín fyrstu spor innan HR, m.a. í gegnum Fræið. Nú er unnið að verkefni sem heitir Segjum nei, segjum frá! og felst í því að búa til forvarnarteiknimynd um kynferðisofbeldi gegn börnum. Háskólinn í Reykjavík er öflugur styrktaraðili verkefnisins.

FJÖLSKYLDUHJÁLP ÍSLANDS

Brugðist var við kalli Fjölskylduhjálpar Íslands með fatasöfnun meðal nemenda og starfsfólks skólans. Yfir 600 flíkur söfnuðust á fáeinum dögum.

ÞJÓÐFUNDUR

Starfsfólk úr Háskólanum í Reykjavík tók virkan þátt í vinnu vegna Þjóðfundarins sem haldinn var í nóvember 2009. 

NATTURA.INFO

Aðstoð við hugmyndaþing, úrvinnslu og sköpun farvegs fyrir þær hugmyndir sem til urðu á hugmyndaþingum Nattura.info haustið 2008.

FRÆÐSLA OG ERINDI

Starfsfólk skólans hefur haldið fjölda erlinda og námskeið fyrir ýmiss konar félög / samtök.


 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica