Ekkert gerist hér ef Icesave leysist ekki
Vextir lækka ekki á næstunni, hagvöxtur eykst ekki og ekki verður unnt að fjármagna stórframkvæmdir ef lausn Icesave-málsins dregst á langinn. Þetta kom fram í viðtali við Friðrik Má Baldursson, forseta viðskiptadeildar HR, í seinni kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins.

