Hækkun endurspeglar óvissu

15.1.2010

Skuldatryggingaálag ríkissjóðs hækkaði um 36 punkta í gær og stendur nú í 546 punktum. Aðeins fjögur lönd eru með hærra álag en Ísland, Argentína, Venezuela, Úkraína og Pakistan. Í Morgunkorni Íslandsbanka segir að hækkunin sé rakin til yfirlýsinga framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og forsætisráðherra Svíþjóðar þess efnis að endurreisn íslensks efnahagslífs kunni að tefjast meðan óvissa er uppi um hvaða stefnu Icesave málið muni taka. Rætt var við Friðrik Má Baldursson, forseta viðskiptadeildar HR, í síðdegisfréttum Ríkisútvarpsins og aftur í kvöldfréttum.


 

Fyrirvarar

Athugið að þær skoðanir og orðalag sem hér er vísað til eru viðkomandi einstaklinga, ekki Háskólans í Reykjavík.


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica