Heilbrigðiskerfið er í gerjun
Geir Gunnlaugsson, prófessor við kennslufræði- og lýðheilsudeild HR, tók við landlæknisembættinu í byrjun mánaðar. Í samtali við Fréttablaðið segir Geir brýnasta verkefnið að standa vörð um grunnþjónustu heilbrigðiskerfisins í fyrirhuguðum niðurskurði.

