Icesave og þjóðarrétturinn
Vel kann að vera að þjóðréttarleg staða Íslands í Icesave-málinu markist af yfirlýsingum ráðamanna rétt eftir hrun þar sem þeir viðurkenna ábyrgð ríkissjóðs á Tryggingasjóði innstæðueigenda og fjárfesta. Það er óumdeild og viðurkennd regla í þjóðarétti að yfirlýsingar þjóðhöfðingja, forsætisráðherra og utanríkisráðherra skuldbindi ríki þeirra. Þetta kom fram í viðtali við Þórdísi Ingadóttur, dósent í þjóðarétti við Háskólann í Reykjavík, í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins og síðar ítarlegra viðtali í Speglinum.

