Stjórnendur hugsanlega ákærðir
Ekki er útilokað að skaðabótamálum á hendur fyrrverandi stjórnendum gömlu bankana fjölgi eftir að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda bankahrunsins verður birt. Þetta er mat Guðmundar Sigurðssonar, prófessors í lögfræði við lagadeild HR. Rætt var við Guðmund í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins.

