Fræ ársins
Fræ ársins var veitt í fyrsta sinn í dag. Fræið er frumkvöðlasamkeppni á vegum Háskólans í Reykjavík í samstarf við Klak – nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins, Hugmyndahús háskólanna og Auði Capital.
Markmið keppninnar er að styðja við frumstig nýsköpunar og gefa þar með frumkvöðlum tækifæri til að breyta hugmynd eða frumgerð í viðskiptaáætlun og sprotafyrirtæki.
Verðlaunahafar fá samtals eina milljón króna, vinnuaðstöðu og niðurfelld skólagjöld í Viðskiptasmiðju Klaksins (sjá frétt á vef HR um Fræ ársins).
Fréttir af Fræi ársins má sjá á mbl.is, visir.is, amx.is, mbl sjónvarpi og á Skjá einum.
Einnig var rætt við verðlaunahafana og einn dómnefndarmann í Síðdegisútvarpi Rásar 2.
Þá var fjallað um Fræið í sjöfréttum Sjónvarpsins og í tíufréttum Sjónvarpsins.
Í Morgunblaðinu í dag var jafnframt sagt ítarlega frá málinu.

