Auðlind einstaklinga – auðlind atvinnulífsins

28.1.2010

Starfsmenntun og símenntun hafa fengið sífellt meira vægi á undanförnum árum. Starfsmenn nýta sér slíka menntun til að bæta atvinnumöguleika sína en fyrirtækin til að bæta samkeppnisstöðu sína á markaði. Í augum flestra fyrirtækja er mannauður ein verðmætasta eign þeirra og er starfsmenntun  því talin arðbær fjárfesting.

Ávinningur af símenntun er margvíslegur: Aukin verðmætasköpun, lægri starfsmannavelta, eftirsóknarverðari vinnustaður og aukin starfsánægja. Mikilvægt er að aðlaga þekkingu og hæfni starfsmanna að síbreytilegu ytra umhverfi, viðhalda þekkingu þeirra og kenna þeim að tileinka sér nýjar aðferðir og tækni. Stjórnendur þurfa að skapa tíma og tækifæri fyrir starfsmenn sína til að læra. Einstaklingurinn þróar áfram fagkunnáttu sína, starfshæfni og þekkingu og bætir sjálfstraust sitt og stöðu á vinnumarkaði.

Flest stéttarfélög styðja þessa þróun með því að niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn.

Vöxtur Opna háskólans í HR

Hlutverk Opna háskólans í Háskólanum í Reykjavík er að virkja þekkingu til að auðga samfélagið. Opni háskólinn þjónar einstaklingum með hagnýtum námskeiðum til að auka færni og fagþekkingu og starfar náið með stjórnendum og sérfræðingum við að efla stjórnunar- og leiðtogahæfni auk þess að veita stuðning m.a. við stefnumótun, fjármálastjórnun og innleiðingu breytinga í rekstri.

Um 7.600 nemendur sóttu 570 námskeið og viðburði í Opna háskólanum á síðasta ári sem er svipaður fjöldi og árinu áður. Opni háskólinn þjónaði yfir 90 fyrirtækjum með klæðskerasniðnum lausnum. Það er jákvætt að sjá að íslenskir stjórnendur leggja áherslu á að fjárfesta í menntun starfsmanna sinna þrátt fyrir erfitt árferði og byggja þannig upp öfluga einstaklinga til að takast á við áskoranir.

Þessi þróun er sérlega jákvæð þegar skoðaðar eru niðurstöður stefnumótunarvinnu nokkurra farsælla þjóða. Þar kemur fram skýr áhersla á tengsl menntunarstigs og sjálfbærni, alþjóðavæðingar og samkeppnishæfni þjóða, sérstaklega með tilliti til ævilangs lærdóms („lifelong learning“).

Salóme Guðmundsdóttir er verkefnastjóri í Opna háskólanum í HR.

Þessi grein birtist í Viðskiptablaðinu í dag.


 

Fyrirvarar

Athugið að þær skoðanir og orðalag sem hér er vísað til eru viðkomandi einstaklinga, ekki Háskólans í Reykjavík.


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica