Sálfræðilega heilbrigður vinnustaður
Hraðinn í nútíma samfélagi eykst stöðugt sem og vinnutengt álag, svo sem aukin samkeppni, auknar kröfur um framleiðni, óhóf upplýsinga, samtímis því að leysa þarf fjölda ólíkra verkefna. Allt getur þetta haft slæm áhrif á heilsu og heilbrigði starfsmanna. Afleiðingar aukinnar streitu og álags geta verið margþættar, svo sem aukin fjarvera starfsmanna frá vinnu, dregið getur úr framleiðni starfsmanna og gæðum vinnunnar. Þannig sýna íslenskar samtímarannsóknir að tæplega helmingur starfsmanna segist upplifa vinnutengda streitu og veikindadögum fjölgar. Samkeppnisforskot margra fyrirtækja í dag er bundið við mannauð fyrirtækisins. Vinnuveitendur átta sig því margir hverjir á því að það er hagur fyrirtækjanna að stuðla að heilsu og heilbrigði starfsmanna sinna því hún er mikilvægur orsakaþáttur fyrir hagnað og frammistöðu fyrirtækis.
Ameríska sálfræðingafélagið (APA) hefur undanfarin ár veitt þeim fyrirtækjum sem teljast „sálfræðilega heilbrigður vinnustaður“ viðurkenningu (sjá www.phwa.org). APA bendir á að ólíkar leiðir séu færar til að byggja upp slíkan vinnustað, en þær aðgerðir sem unnt er að grípa til falla innan fimm lykilflokka. Fyrirtæki ættu í fyrsta lagi að huga að því að virkja starfsmenn sína. Þetta er unnt að gera með því að veita starfsmönnum aukið sjálfræði í starfi og gera þeim kleift að hafa áhrif á þætti sem snerta daglegt starf þeirra. Jafnframt er bent á vænleika þess að koma á fyrirtækjabrag þar sem hlustað er eftir rödd starfsmanna og skoðunum þeirra. Í öðru lagi þurfa stjórnendur að láta sig líkamlega og andlega heilsu og öryggi starfsmanna sinna varða. Það má gera með því að hvetja starfsmenn til heilbrigðs lífsstíls og virkari og áhrifaríkari streitustjórnunar. Í þriðja lagi ættu stjórnendur að viðurkenna að starfsmenn þurfa að samræma vinnu og einkalíf. Fyrirtæki geta til dæmis létt undir með því að bjóða sveigjanlegan vinnutíma ef þess er kostur. Í fjórða lagi þurfa fyrirtæki að huga vel að vexti og þroska starfsmanna sinna með því að veita þeim tækifæri til að auka við þekkingu sína, færni og getu. Að því má stuðla með framboði af þroskandi námskeiðum eða námsstyrkjum og með virkri starfsþróun innan fyrirtækis. Að lokum þurfa stjórnendur að huga að því að veita einstaklingum og starfsheildum viðurkenningu fyrir vinnuframlag sitt. Það þarf að huga vel að því á hvaða formi sú viðurkenning er, s.s. sanngjörn peningaleg umbun, verðlaun eða viðurkenning og hrós fyrir framlag.
Heilsa og heilbrigði starfsmanna er allra hagur, því ættu fyrirtæki sífellt að spyrja sig hvernig hægt sé að stuðla enn frekar að auknu heilbrigði á vinnustað.
Auður Arna Arnardóttir er lektor við viðskiptadeild HR.
Þessi pistill birtist í Viðskiptablaðinu í dag. Því miður birtist röng mynd með pistlinum, en hér er mynd af Auði Örnu.


