HR ætlar að leigja út rafbíla
Stefnt er að því að nemendur og kennarar við Háskólann í Reykjavík hafi í vor aðgang að rafmagnsbílum sem leigðir verða frá skólanum. Hér er þó ekki um hefðbundna bílaleigu að ræða heldur nýstárlega samnýtingu á bílum með því markmiði að breyta samgöngumynstri nemenda og starfsmanna. Undanfarið hafa nemendur í tækni- og verkfræðideild HR unnið að því að breyta bensínknúnum bíl í rafbíl og er verkefnið nú langt komið. Fjallað er um málið og rætt við dr. Hlyn Stefánsson, lektor við tækni- og verkfræðideild, á baksíðu Morgunblaðsins í dag.

