Niðurfelling skulda getur verið varasöm

7.2.2010

Niðurfelling á skuldum auðmanna getur verið áhættusöm fyrir bankanna enda orðspor þeirra að veði segir Stefán Einar Stefánsson, viðskiptasiðfræðingur HR. Almenningur muni ekki láta hvað sem er yfir sig ganga. Rætt var við Stefán Einar í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.

Fréttin er því miður ekki aðgengileg á vef Rúv, en texti fréttarinnar er hér að neðan:


Niðurfelling á skuldum auðmanna getur verið áhættusöm fyrir bankanna enda orðspor þeirra að veði segir viðskiptasiðfræðingur. Almenningur muni ekki láta hvað sem er yfir sig ganga.

Ef fer sem horfir þarf Arion-banki að afskrifa tugi milljarða króna vegna 1998 ehf, eignarhaldsfélags verslunarrisans Haga. Jón Ásgeir Jóhannesson var þar aðaleigandi, en nú leiðir faðir hans, Jóhannes Jónsson í Bónusi hóp stjórnenda sem fær forkaupsrétt að 15% hlut í Högum. Jóhannes verður jafnframt stjórnarformaður, að minnsta kosti í þá mánuði sem enn eru í að hlutabréf í Högum verði boðin til sölu á opnum markaði. Nýverið fékk líka Ólafur Ólafsson Samskip aftur í hendurnar, í kjölfar fjárhagslegrar endurskipulagningar eins og það heitir. Stefán Einar Stefánsson er viðskiptasiðfræðingur við Háskólann í Reykjavík.

Stefán Einar Stefánsson, viðskiptasiðfræðingur: Bankarnir verða að taka það núna inn í sína áhættustýringu, það er að segja hvernig almenningur bregst við þeim ákvörðunum sem teknar eru um niðurfellingu skulda, vegna þess að óþol fólks gagnvart bankakerfinu er mikið og almenningur í landinu mun ekki láta hvað sem er yfir sig ganga. Það er hreinlega spurning um, um orðspor eða jafnvel orðsporsmissi.

 

Fyrirvarar

Athugið að þær skoðanir og orðalag sem hér er vísað til eru viðkomandi einstaklinga, ekki Háskólans í Reykjavík.

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica