Skuggastjórnun á Íslandi
Málfundafélag Lögréttu, félag laganema við Háskólann í Reykjavík, stóð fyrir málfundi um skuggastjórnendur í dag. Þar fluttu erindi Hróbjartur Jónatansson, hrl., og Guðrún Björk Bjarnadóttir, lögmaður hjá Samtökum atvinnulífsins og aðjúnkt við lagadeild HR.
Fjallað var um málið og rætt við Hróbjart í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í kvöld og í Speglinum eftir fréttir.
Hróbjartur og Guðrún Björk voru einnig gestir Kastljóss í kvöld þar sem þetta hugtak var rætt, en skuggastjórnendur er hugtak sem ekki er að finna í íslenskum rétti, en er að finna víða í nágrannalöndum okkar, t.a.m. í breskum rétti.
Almenn skilgreining á skuggastjórnendum er að þeir koma ekki fram og vilja ekki að það sé vitað að þeir séu við stjórnvölinn. Þeir hafa oft á tíðum tögl og haldir í félögum án þess að þeir séu skráðir stjórnendur. Því vaknar sú spurning hver séu réttindi þeirra, skyldur og möguleg ábyrgð.

