Eðlilegt að leita til Bandaríkjanna um stuðning
Það er eðlilegt í hæsta máta að leita eftir stuðningi Bandaríkjanna í Icesave deilunni, sérstaklega vegna sterkrar stöðu þeirra innan Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þetta kom fram í máli Ólafs Ísleifssonar, lektors við viðskiptadeild HR, í viðtali í Speglinum í Ríkisútvarpinu.

