Breyttu bensínbíl í rafmagnsbíl
Þrír nemendur úr Háskólanum í Reykjavík breyttu bensínbíl í rafmagnsbíl á aðeins nokkrum mánuðum í vetur. Bíllinn var til sýnis fyrir utan Ráðhús Reykjavíkur í dag í tilefni Háskóladagsins 2010. Fréttamaður Stöðvar 2 kynnti sér málið frekar og ræddi við tvo af hönnuðunum, þá Hrafn Leó Guðjónsson og Guðjón Hugberg Björnsson.

