Verklagsreglur bankanna
Ríkar kröfur eru gerðar til eigenda og stjórnenda sem vilja halda skuldsettum fyrirtækjum samkvæmt nýjum verklagsreglum bankanna. Ráðherraskipuð nefnd fylgist með framkvæmdinni en hefur hins vegar engin tól til að grípa inn í telji hún bankana á rangri braut. Spegillinn í Ríkisútvarpinu fjallaði um verklagsreglur bankanna í kvöld. Stefán Einar Stefánsson, viðskiptasiðfræðingur við lagadeild HR var á meðal viðmælenda.

