Gjaldeyrisbrask hefur áhrif á heimili landsins
Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra rannsakar 30 milljarða króna gjaldeyrisbrask hátt í 200 manna. Gengið veiktist og Seðlabankinn þurfti að klípa af gjaldeyrisforðanum vegna þessa sagði Friðrik Már Baldursson, prófessor og forseti viðskiptadeildar HR í kvöldfréttum Stöðvar 2.

