Eiga sextánhundruð milljarða í sparifé
Fréttablaðið fjallar um inneignir í íslenskum bönkum, en þær námu um 1600 milljörðum um síðustu áramót. Til samanburðar nefnir blaðið að inneignirnar hafi numið um 470 milljörðum árið 2003. Rætt er við Friðrik Má Baldursson, forseta viðskiptadeildar HR, af þessu tilefni, en hann bendir m.a. á að í hagkerfi þar sem verðhjöðnun ríki, sé eðlilegt að fólk haldi að sér höndum og geymi sparifé sitt í stað þess að fjárfesta. Auk þess sé traust almennings á skuldabréfum fyrirtækja lítið í augnablikinu. Fjallað er um málið á forsíðu og á bls. 6.

